Kjarrmóar 41 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1806169
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Lögð fram byggingaleyfisumsókn fyrir bifreiðageymslu fyrir Kjarrmóa 41. Deiliskipulag Kjarrmóa telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt áður en fyrsta aðalskiplag Garðabæjar var staðfest. Það deiliskipulag skilgreinir byggingarreiti fyrir 8 bílageymslur á þessum stað sem er á óbyggðu svæði milli Kjarrmóa og Hrísmóa. Er þessi bílageymsla sú fyrsta sem rís á þessum stað.
Skipulagsnefnd hafnar því að byggingarleyfi verði veitt fyrr en nýtt og endurskoðað deiliskipulag fyrir Kjarrmóa liggur fyrir. Nefndin beinir því til tækni-og umhverfissviðs að móta tillögu að deiliskipulagi fyrir umrætt svæði.