Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar að Miðhrauni 24.

Málsnúmer 1806403

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

43. (1858). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Miðhraun 24 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

14. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingum á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Miðhraun 24 að lokinn auglýsingu.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að lóðin stækki til suðurs, verði 13.888 í stað 12,742 m2. Aðkomur að lóðinni breytast frá Miðrauni og gert verði ráð fyrir bráðabirgðaaðkomu frá Álftanesvegi sem verður hægt að loka þegar að Álftanesvegur verður byggður í samræmi við aðalskipulag.
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Skipulasnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sbr.42.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

11. (833). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna lóðarinnar við Miðhraun 24. Í breytingunni felst stækkun lóðar, breytingar á aðkomu, breyting á byggingarreit ofl.

Bæjarráð Garðabæjar

04

31. (1846). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna lóðarinnar við Miðhraun 24. Í breytingunni felst stækkun lóðar, breytingar á aðkomu, breyting á byggingarreit ofl.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingum á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Miðhraun 24.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram hugmynd lóðarhafa að breytingum á deiliskipulagi Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Miðhraun 24. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar í átt að Reykjanesbraut auk nýrrar aðkomu frá "Álftanesvegi" sem hugsuð er til bráðabirgða þangað til mislæg gatnamót verða byggð á mótum Álftanesvegar og Reykjanesbrautar.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.