Beint í efni

31. (1846). fundur

04.09.2018
Bæjarráð Garðabæjar

31. (1846). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

04.09.2018

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1808443

01

Líkamsárásir - öryggi og eftirlit í Garðabæ.

Á fund bæjarráðs mættu Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri, Karl Steinar Valsson, yfirmaður rannsóknardeildar og Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirmaður almennrar deildar.

Rætt um nýlega atburði í Garðabæ þar sem veist var að ungum stúlkum og kom fram að rannsókninni miðar vel. Umræða var um á hvern hátt hægt er að auka eftirlit og tryggja öryggi almennt í samfélaginu.

Málsnúmer 1808082

02

Rjúpnahæð 13 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Orra Sigurðssyni, kt. 030379-4709, leyfi til að reisa garðskála á lóð núverandi einbýlishúss að Rjúpnahæð 13.

Málsnúmer 1703045

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir áfanga 1-4 í austurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir austurhluta Urriðholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Á tillögunni hafa verið gerðar eftirfarandi breytingar. Stígur við heimreið golfskála Odds verður færuð austan við heimreið. Byggingarreitir og útfærsla bifreiðageymslna að Holtsvegi 53, 55 og 57 breytast.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 1805050

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi staðarvísi fyrir Háholtið í Urriðaholti.

Bæjarráð samþykkir að staðarvísir Urriðaholts verði hafður að leiðarljósi við uppbyggingu í Urriðaholti og kynntur sem handbók eða leiðbeiningarit fyrir íbúum, eigendum, hönnuðum, verktökum o.fl. sem koma að málum í Urriðaholti.

Málsnúmer 1504148

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Lundahverfis.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Málsnúmer 1804367

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðraholt.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1706017

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Barnaverndarstofu um lóð fyrir meðferðarheimili.

Bæjarráð samþykkir með vísan til umfjöllunar skipulagsnefndar að áfram verði unnið að því að finna meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu stað á Vífilsstaðahálsi (gegnt Kjóavöllum).

Ingvar Arnarson lagði fram eftirfarandi bókun:

„Garðabæjarlistinn fagnar beiðni Barnaverndarstofu og telur að Garðabær eigi að styðja heilshugar við þessa hugmynd. Garðabær hefur næg svæði sem gætu hentað fyrir slíkt meðferðarheimili, svæði sem eru hlýleg, aðlaðandi og í tengingu við náttúruna. Það er því von Garðabæjarlistans að viðræður geti hafist sem allra fyrst.“

Málsnúmer 1806403

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns varðandi lóðina við Miðhraun 24.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna lóðarinnar við Miðhraun 24. Í breytingunni felst stækkun lóðar, breytingar á aðkomu, breyting á byggingarreit ofl.

Málsnúmer 1806437

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar varðandi lóðina við Smiðsbúð 6.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Smiðsbúð 6 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Málsnúmer 1806304

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Flata barðandi lóðina við Tjarnarflöt 12.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar við Tjarnarflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1702322

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bessastaða.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Bessastaða. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Áður en tillagan verður auglýst eiga að liggja fyrir umsagnir Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar.

Málsnúmer 1704011

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að deiliskipulagi Holtstúns.

Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 1712136

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar um drög að tillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins - vaxtarmörk í Álfsnesi.

Afgreiðslan varðar drög að tillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins varðandi iðnaðarsvæði fyrir efnisvinnslu við Álfsnesvík. Frestur til að skila umsögn er til 20. september og þá verður boðað til kynningarfundar fyrir miðjan september. Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til athugasemda.

Málsnúmer 1806453

14

Útboð - Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Garðabæ 2018-2021.

Lögð fram eftirfarandi tilboð eftir yfirferð.

Vegamál - Vegmerking ehf. kr. 34.981.668

Íslenska gámafélagið ehf. kr. 37.362.000

Garðlist ehf. kr. 39.300.000

Gröfuverk ehf. kr. 41.533.332

Hreinsitækni ehf. kr. 42.474.000

Kostnaðaráætlun kr. 39.900.000

Tilboð lægstbjóðanda uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til hæfni og reynslu í grein 0.1.3. í útboðsskilmálum en bjóðandi hefur ekki unnið sambærilegt verk að umfangi á síðast liðnum 5 árum og yfirstjórnandi verksins hefur ekki 5 ára reynslu af sambærilegum verkefnum. Þá hefur bjóðandi ekki skilað lýsingu á gæðastjórnunarkerfi eins og áskilið er í grein 0.4.2 í útboðsgögnum.

Tilboði lægstbjóðanda er af ofangreindum ástæðum hafnað.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Íslenska gámafélagsins með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings en um er að ræða innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða var áður boðin út í byrjun júní en á fundi bæjarráðs sem var haldinn 3.júlí sl. var samþykkt vísan til ágalla í auglýsingu, og að öðru leyti við framkvæmd útboðsins, að hafna öllum tilboðum og auglýsa útboðið að nýju.

Málsnúmer 1808414

15

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi, dags. 22.08.18

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs og felur ráðinu að taka tillögur starfshóps ráðuneytisins um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í íþrótta- og æskulýðsstarfi til umfjöllunar með íþrótta- og æskulýðsfélögum í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808385

16

Bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands varðandi nýtt heiti stofnunar, dags. 21.08.18.

Málsnúmer 1808083

17

Umsagnarbeiðni vegna kröfu um afturköllun á rekstrarleyfi veitingastaðar að Garðatorgi 4.

Bæjarráð samþykkir að áður en umsögn verði veitt láti rekstraraðili mæla að nýju högghljóðeinangrun frá eldhúsi í framhaldi af úrbótum á húsnæðinu.

Málsnúmer 1808474

18

Bréf Norrænafélagsins í Garðabæ um styrk vegna norrænnar menningarhátíðar, dags. 30.08.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808482

19

Bréf Umhverfisstofnunar um áætlanir um úrbætur í fráveitumálum, dags. 30.08.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til úrvinnslu og afgreiðslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808480

20

Bréf Leiksmiðjunnar Friggjar varðandi stuðning við leikhús í Garðabæ, dags. 30.08.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1808484

21

Bréf Þjóðskrár Íslands um nýtt fasteignamat 2019, dags. 27.08.18.