Beint í efni

Fyrirspurn um lóð fyrir nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu

Málsnúmer 1706017

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (840). fundur

Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsingu um úthlutun lóðar fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga í Garðabæ. Um er að ræða 10.000 fm lóð í Vífilsstaðahálsi þar sem reisa á 1.000 fm húsnæði.

Bæjarráð Garðabæjar

02

46. (1861). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viljayfirlýsingu um úthlutun lóðar fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga í Garðabæ. Um er að ræða 10.000 fm lóð í Vífilsstaðahálsi þar sem reisa á 1.000 fm húsnæði.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

31. (1846). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til umfjöllunar skipulagsnefndar að áfram verði unnið að því að finna meðferðarheimili á vegum Barnaverndarstofu stað á Vífilsstaðahálsi (gegnt Kjóavöllum).

Ingvar Arnarson lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn fagnar beiðni Barnaverndarstofu og telur að Garðabær eigi að styðja heilshugar við þessa hugmynd. Garðabær hefur næg svæði sem gætu hentað fyrir slíkt meðferðarheimili, svæði sem eru hlýleg, aðlaðandi og í tengingu við náttúruna. Það er því von Garðabæjarlistans að viðræður geti hafist sem allra fyrst.“

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir umleitan Barnaverndarstofu um að Garðabær finni meðferðarheimili viðeigandi stað innan marka sveitarfélagsins og í útjaðri byggðar. Lögð fram þarfagreining sem unnin hefur verið fyrir Barnaverndarstofu vegna starfsemi meðferðarheimilis. Skipulasstjóri kynnti þá hugmynd að meðferðarheimili yrði fundinn staður á Vífilsstaðahálsi (gengt Kjóavöllum). Skipulagsnefnd tekur undir þá hugmynd og felur tækni-og umhverfissviði að vinna áfram að með málið, sérstaklega þarf að fara yfir með Barnaverndastofu tímafresti varðandi umrædda lóð enda er hún utan vaxtamarka höfuðborgarsvæðsins samkvæmt Svæðisskipulagi og á þróunarsvæði samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar sem enn er ekki deiliskipulagt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

06

22. (1837). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

21. (1787). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl