Beint í efni

18. (840). fundur

20.12.2018
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (840). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

20.12.2018

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. desember 2018 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1812014F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 11.12.2018.

Gunnar Valur Gíslason, vék af fundi undir þessum lið.

Gunnar Einarsson, ræddi 21. tl., bréf átakshóps um húsnæðismál varðandi upplýsingar um stöðu húsnæðismála.

Fundargerð bæjarráðs sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.


Málsnúmer 1812026F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 18.12.2018.

Gunnar Valur Gíslason, tók sæti á fundinum að nýju.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., viljayfirlýsingu velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga. Sara Dögg lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna.


Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., viljayfirlýsingu velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga. Almar lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs. Sigríður lýsti yfir ánægju með ráðningu í starfið. Sigríður Hulda þakkaði jafnframt Katrínu Friðriksdóttur fyrir hennar störf sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs síðastliðið ár.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs og 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta í Garðabæ um endurnýjun samnings.

Björg Fenger, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs og 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta í Garðabæ um endurnýjun samnings.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 11 og nr. 12 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 11

Bæjarskrifstofur laun kr. 23.600.000

Kostnaðarauka mætt með breytingu

á innri leigu samtals að fjárhæð kr. 23.600.000

Viðauki 12

Innri leiga (hækkun tekna) kr. 28.801.582

Ráðstafað samkvæmt viðauka 11 kr. 23.600.000

Rekstrarafgangur (hækkun) kr. -5.201.582

Fundargerð bæjarráðs sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1812020F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 12.12.2018.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Garðabæjarlistinn óskar eftir því að tillögur þess efnis að skýrt sé kveðið á um það í húsnæðisstefnu hvaða leiðir verða farnar til þess að mæta eftirspurn aldurshópsins 20 - 39 ára. Garðabæjarlistinn ítrekar mikilvægi þess að lagt verði upp með alveg skýra valkosti til búsetu þessa aldurshóps Annars vegar í formi leiguhúsnæðis og hins vegar húsnæðis til kaups með sérstaka áherslu á greiðslubyrði ungs fólks.“

Greinargerð

Í drögum um húsnæðisstefnu Garðabæjar er sérstaklega fjallað um mikilvægi þess að mæta yngsta aldurshópi þeirra sem stofna til eigin heimilis eða hópsins frá 20 - 39 ára. Hins vegar er hvergi staf að finna um stefnu Garðabæjar í þeim efnum. Húsnæðisstefna er gríðarlega mikilvægt plagg sem jú mótar stefnu til framtíðar um íbúaþróun og samsetningu íbúanna til framtíðar. Því skiptir máli að skýrt sé tekið fram hvaða leiðir á að fara í þeirri uppbyggingu sem framundan er. En í drögunum er einungis að finna þann fjölda íbúða sem liggur fyrir að muni rísa á næstu árum.

Að styðja undir almennan leigumarkað er hvetjandi fyrir ungt fólk sem er að stofna til heimilis í fyrsta skipti. Að hafa val um ódýrt húsnæði til kaups skiptir líka máli en eitt á ekki að útiloka annað. En um þessa tvo valkosti þarf að liggja fyrir áætlun sem ákveðið er að fylgja eftir með markvissum og skilvirkum hætti.

Þá lagði Sara Dögg eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.

„Eftir að hafa rýnt drög um húsnæðisstefnu Garðabæjar öðru sinni er mikilvægt að taka frekari umræðu um ákveðna þætti. Fyrst verð ég að segja að núverandi drög virðast mikið frekar vera hin fínasta skýrsla heldur en stefna, þar sem verið er að draga fram stöðuna og benda á leiðir sem vert er og mikilvægt er að skoða frekar. En minna um útfærslur.

Við teljum einfaldlega enn vanta töluvert upp á að það liggi skýrt fyrir hvert skal stefnt. Hvernig á að mæta ungu fólki á aldursbilinu 20-39 ára til framtíðar? Hvaða valkostir verða í boði? Hvernig ætlar Garðabær að koma að almennum leigumarkaði? Verða gert ráð fyrir leiguíbúðum í Lyngásnum?

Og ætlar Garðabær að láta það alfarið í hendur Bjargs og Brynju - hússjóð Öryrkjabandalagsins að tryggja félagslegt húsnæði? Og hafa þá um leið ekkert um það að segja hverjum verður tryggt húsnæði þegar á hólminn er komið?

Tillögu varðandi félagslegt húsnæði höfum við í Garðabæjarlistanum þegar lagt fram og henni verið vísað áfram inn í fjölskylduráð þar sem hljómgrunnur virðist takmarkaður. Við ítrekum þá ósk okkar að slíkar lausnir verði ræddar frekar innan nefndarinnar og gerum því ráð fyrir að tillagan um kaup Garðabæjar á hlutfalli nýrra íbúða á uppbyggingarsvæðum sé ekki dauð þar sem ekki er búið að samþykkja húsnæðisstefnuna.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar og lagði til að framkominni tillögu verði vísað til bæjarráðs.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Meirihluti bæjarstjórnar vill árétta að í húsnæðisáætlun Garðabæjar kemur skýrt fram að fjölbreytt form íbúða verða byggð upp á næstu árum í bænum. Mest uppbygging verður í fjölbýli sem mætir m.a. þörfum yngri aldurshópa. Þá liggja fyrir áætlanir um uppbyggingu almennra leiguíbúða, sem mætir ekki síst þörf yngra fólks, og áætlanir um uppbyggingu félagslegs húsnæðis. Hér eftir sem hingað til mun fólk síðan eiga þess kost að eignast sitt húsnæði í Garðabæ, sem skiptir miklu máli. Niðurstaða húsnæðisáætlunar er að fyrirhuguð uppbygging í Garðabæ geri miklu meira en að mæta þörf fyrir húsnæði á næstu átta árum. Fullyrðingum um að Garðabær hafi ekki skýra sýn í þessum efnum er því mótmælt.“

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1811052F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 06.12.2018.

Sigurður Guðmundsson ræddi 2. tl., breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna lóðar fyrir fjölnota íþróttahús.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1811050F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 05.12.2018.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar, 2. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa 2018 og 4. tl., tímabundin leyfi frá skólasókn.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og fjallaði um heilsueflandi samfélag.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og heilsueflandi samfélag.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og heilsueflandi samfélag.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og heilsueflandi samfélag.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og heilsueflandi samfélag.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu Rannsóknar og greiningar og heilsueflandi samfélag

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1812016F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11.12.2018.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1802195

07

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða frá 29.11.2018.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1801175

08

Fundargerðir SSH frá 03.12.2018.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1801146

09

Fundargerðir Strætó bs. frá 16.11 og 07.12.2018.

Björg Fenger ræddi 1. tl., fg 16/11, árshlutauppgjör 30.09.18, 3. tl., fg frá 16/11, persónuverndarstefna, 1. tl., fg frá 7/12, akstursþjónustu fatlaðs fólks 2. tl., fg frá 7/12, farþegatalningar og 5. tl., fg frá 7/12, gjaldskrámál

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., fg frá 7/12, akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., fg frá 7/12, akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 1802055

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 14.12.2018

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710169

11

Samningur um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss

Gunnar Einarsson, fjallaði um samning um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss. Gunnar lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir stuðningi við samninginn.

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir sérstakri ánægju með að samningur um þetta mikilvæga verkefni væri í höfn.

Bæjarstjórn samþykkir samning við Íslenska aðalverktaka hf. um byggingu nýs fjölnota íþróttahúss og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

Um er að ræða samning um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss sem rísa á í Vetrarmýri og er samningsfjárhæð kr. 4.157.441.579. Gert er ráð fyrir að hönnunarvinna hefjist í janúar 2019 og eru verklok áætluð 15. apríl 2021.