Fundargerð bæjarráðs frá 18.12.2018.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (840). fundur
Gunnar Valur Gíslason, tók sæti á fundinum að nýju.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., viljayfirlýsingu velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga. Sara Dögg lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., viljayfirlýsingu velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir unglinga. Almar lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs. Sigríður lýsti yfir ánægju með ráðningu í starfið. Sigríður Hulda þakkaði jafnframt Katrínu Friðriksdóttur fyrir hennar störf sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs síðastliðið ár.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs og 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta í Garðabæ um endurnýjun samnings.
Björg Fenger, ræddi 8. tl., ráðningu í starf forstöðumanns fræðslu og menningarsviðs og 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta í Garðabæ um endurnýjun samnings.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 11 og nr. 12 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 11
Bæjarskrifstofur laun kr. 23.600.000
Kostnaðarauka mætt með breytingu
á innri leigu samtals að fjárhæð kr. 23.600.000
Viðauki 12
Innri leiga (hækkun tekna) kr. 28.801.582
Ráðstafað samkvæmt viðauka 11 kr. 23.600.000
Rekstrarafgangur (hækkun) kr. -5.201.582
Fundargerð bæjarráðs sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.