Fundargerð fjölskylduráðs frá 12.12.2018.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (840). fundur
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn óskar eftir því að tillögur þess efnis að skýrt sé kveðið á um það í húsnæðisstefnu hvaða leiðir verða farnar til þess að mæta eftirspurn aldurshópsins 20 - 39 ára. Garðabæjarlistinn ítrekar mikilvægi þess að lagt verði upp með alveg skýra valkosti til búsetu þessa aldurshóps Annars vegar í formi leiguhúsnæðis og hins vegar húsnæðis til kaups með sérstaka áherslu á greiðslubyrði ungs fólks.“
Greinargerð
Í drögum um húsnæðisstefnu Garðabæjar er sérstaklega fjallað um mikilvægi þess að mæta yngsta aldurshópi þeirra sem stofna til eigin heimilis eða hópsins frá 20 - 39 ára. Hins vegar er hvergi staf að finna um stefnu Garðabæjar í þeim efnum. Húsnæðisstefna er gríðarlega mikilvægt plagg sem jú mótar stefnu til framtíðar um íbúaþróun og samsetningu íbúanna til framtíðar. Því skiptir máli að skýrt sé tekið fram hvaða leiðir á að fara í þeirri uppbyggingu sem framundan er. En í drögunum er einungis að finna þann fjölda íbúða sem liggur fyrir að muni rísa á næstu árum.
Að styðja undir almennan leigumarkað er hvetjandi fyrir ungt fólk sem er að stofna til heimilis í fyrsta skipti. Að hafa val um ódýrt húsnæði til kaups skiptir líka máli en eitt á ekki að útiloka annað. En um þessa tvo valkosti þarf að liggja fyrir áætlun sem ákveðið er að fylgja eftir með markvissum og skilvirkum hætti.
Þá lagði Sara Dögg eftirfarandi bókun Garðabæjarlistans.
„Eftir að hafa rýnt drög um húsnæðisstefnu Garðabæjar öðru sinni er mikilvægt að taka frekari umræðu um ákveðna þætti. Fyrst verð ég að segja að núverandi drög virðast mikið frekar vera hin fínasta skýrsla heldur en stefna, þar sem verið er að draga fram stöðuna og benda á leiðir sem vert er og mikilvægt er að skoða frekar. En minna um útfærslur.
Við teljum einfaldlega enn vanta töluvert upp á að það liggi skýrt fyrir hvert skal stefnt. Hvernig á að mæta ungu fólki á aldursbilinu 20-39 ára til framtíðar? Hvaða valkostir verða í boði? Hvernig ætlar Garðabær að koma að almennum leigumarkaði? Verða gert ráð fyrir leiguíbúðum í Lyngásnum?
Og ætlar Garðabær að láta það alfarið í hendur Bjargs og Brynju - hússjóð Öryrkjabandalagsins að tryggja félagslegt húsnæði? Og hafa þá um leið ekkert um það að segja hverjum verður tryggt húsnæði þegar á hólminn er komið?
Tillögu varðandi félagslegt húsnæði höfum við í Garðabæjarlistanum þegar lagt fram og henni verið vísað áfram inn í fjölskylduráð þar sem hljómgrunnur virðist takmarkaður. Við ítrekum þá ósk okkar að slíkar lausnir verði ræddar frekar innan nefndarinnar og gerum því ráð fyrir að tillagan um kaup Garðabæjar á hlutfalli nýrra íbúða á uppbyggingarsvæðum sé ekki dauð þar sem ekki er búið að samþykkja húsnæðisstefnuna.“
Sigurður Guðmundsson, ræddi drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar og lagði til að framkominni tillögu verði vísað til bæjarráðs.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Meirihluti bæjarstjórnar vill árétta að í húsnæðisáætlun Garðabæjar kemur skýrt fram að fjölbreytt form íbúða verða byggð upp á næstu árum í bænum. Mest uppbygging verður í fjölbýli sem mætir m.a. þörfum yngri aldurshópa. Þá liggja fyrir áætlanir um uppbyggingu almennra leiguíbúða, sem mætir ekki síst þörf yngra fólks, og áætlanir um uppbyggingu félagslegs húsnæðis. Hér eftir sem hingað til mun fólk síðan eiga þess kost að eignast sitt húsnæði í Garðabæ, sem skiptir miklu máli. Niðurstaða húsnæðisáætlunar er að fyrirhuguð uppbygging í Garðabæ geri miklu meira en að mæta þörf fyrir húsnæði á næstu átta árum. Fullyrðingum um að Garðabær hafi ekki skýra sýn í þessum efnum er því mótmælt.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
Fundargerðin er lögð fram.