Beint í efni

Samningur um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss

Málsnúmer 1710169

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (840). fundur

Gunnar Einarsson, fjallaði um samning um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss. Gunnar lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir stuðningi við samninginn.

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir sérstakri ánægju með að samningur um þetta mikilvæga verkefni væri í höfn.

Bæjarstjórn samþykkir samning við Íslenska aðalverktaka hf. um byggingu nýs fjölnota íþróttahúss og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

Um er að ræða samning um hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss sem rísa á í Vetrarmýri og er samningsfjárhæð kr. 4.157.441.579. Gert er ráð fyrir að hönnunarvinna hefjist í janúar 2019 og eru verklok áætluð 15. apríl 2021.

Bæjarráð Garðabæjar

02

46. (1861). fundur

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

44. (1859). fundur

Lögð fram skýrsla Jón Arnar Baldurssonar, löggilts endurskoðanda um mat á áhrifum fjárfestingar í fjölnota íþróttahúsi á fjárhags sveitarfélagsins, sbr. 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Niðurstaða matsins er að Garðabær geti ráðist í fjárfestingu í fjölnota íþróttahúsi að fjárhæð 4.850 mkr. án þess að hún hafi veruleg neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu og rekstur bæjarins.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn telur mikilvægt að Garðabær fari vel yfir alla þætti sem tengjast framkvæmdum og fjárfestingu við fjölnota knatthúsi. Í skýrslu RÓ er talað um lóðarsölu og að sú sala eigi að standa undir stórum hluta fjárfestingarinnar. Hvergi er hægt að sjá hvaða lóðir um ræðir eða hvenær þessar lóðir eigi að fara í sölu.
Til að hægt sé að taka mark á skýrslu sem þessari þurfa allar breytur að vera til staðar. Við í Garðabæjarlistanum teljum því að það ríki veruleg óvissa um hvaða áhrif þessi framkvæmd muni hafa á fjárhag Garðabæjar og óskum eftir því að fá að sjá áætlun um fyrirhugaða lóðarsölu.“

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (831). fundur

Gunnar Valur Gíslason, vék af fundi með vísan til reglna um hæfi bæjarfulltrúa til meðferðar og afgreiðslu mála. Sigurður Guðmundsson, varaforseti tók við stjórn fundarins.

Björg Fenger kvaddi sér hljóðs og gerði nánari grein fyrir vinnu matsnefndar og niðurstöðum nefndarinnar í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs um niðurstöður matsnefndar og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn hefði viljað sjá raunverulega valkosti fyrr í ferlinu þar sem íbúum hefði verið gefinn kostur á að kjósa á milli tveggja valkosta. Annars vegar þann kost sem hér er til umfjöllunar og hins vegar um ódýrari leið sem þó mætti ávallt þeim skorti á aðstöðu til æfinga. Hér er um gríðarlega mikla fjármuni að ræða og Garðabæjarlistinn telur afar mikilvægt að um framkvæmdina ríki sátt í samfélaginu."

Almar Guðmundsson, ræddi niðurstöðu matsnefndar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.

Björg Fenger, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi niðurstöðu matsnefndar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu matsnefndar um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda ÍAV á grundvelli tilboðs félagsins, ákvæða alútboðsgagna og niðurstöðu matsnefndar um það sem betur má fara í tillögu bjóðanda.
Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að láta fara fram mat á áhrifum fjárfestingarinnar á fjárhag bæjarins samkvæmt 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Bæjarráð Garðabæjar

05

21. (1836). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu matsnefndar um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda ÍAV á grundvelli tilboðs félagsins, ákvæða alútboðsgagna og niðurstöðu matnefndar um það sem betur má fara í tillögu bjóðanda.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að láta fara fram mat á áhrifum fjárfestingarinnar á fjárhag bæjarins samkvæmt 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

18. (1833). fundur

Lagðar fram niðurstöður matsnefndar á tilboðum í byggingu fjölnota íþróttahús sem voru opnuð 19. maí sl.

Tillaga Nafn bjóðanda Einkunn Tilboðsverð Reiknað verð
Tillaga 10155 Eykt ehf. 1,030 5.497.349.500 5.337.232.524
Tillaga 2_10155 Eykt ehf. 1,030 5.217.349.500 5.065.387.864
Tillaga 21000S Ístak hf. 1,049 5.629.845.405 5.366.868.832
Tillaga 75853A Íslenskir aðalv. hf. 1,050 4.249.561.579 4.047.201.504
Tillaga 99899X Munck Íslandi 1,092 4.582.424.370 4.196.359.313

Bæjarráð felur matsnefnd að yfirfara verðtilboð með tilliti til ákvæða útboðsgagna og skila endanlegu álit og umsögn að þeirri yfirferð lokinni.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

4. (826). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og verða þau send þátttakendum í lokuðu alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Í gögnunum koma fram fyrirvarar um endanlegt deiliskipulag svæðisins. Þátttakendur í lokuðu útboði eru eftirfarandi verktakar samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá fundi, dags. 1. febrúar 2018.
Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379 Eykt ehf., kt. 560192-2319 Ístak hf., kt. 430214-1520 Munck á Íslandi, kt., 701013-0340.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

08

8. (1823). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Stefán Veturliðason verkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu og Guðbjörg Brá Gísladóttir, verkfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerðu grein fyrir alútboðsgögnum vegna byggingar fjölnota íþrótthúss í Vetrarmýri.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi útboðsgögn og verða þau send þátttakendum í lokuðu alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Í gögnunum koma fram fyrirvarar um endanlegt deiliskipulag svæðisins. Þátttakendur í lokuðu útboði eru eftirfarandi verktakar samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá fundi, dags. 1. febrúar 2018.

Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379 Eykt ehf., kt. 560192-2319 Ístak hf., kt. 430214-1520 Munck á Íslandi, kt., 701013-0340

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

2. (824). fundur

Bæjarstjórn samþykkir þátttöku eftirfarandi aðila í lokuðu alútboði vegna byggingar nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379
Eykt ehf., kt. 560192-2319
Ístak hf., kt. 430214-1520
Munck á Íslandi, kt., 701013-0340

Umsókn Mannverks ehf., kt. 411112-0200 er hafnað þar sem hún uppfyllir ekki skilyrði skilmála um nægjanlegt eigið fé.

Bæjarráð Garðabæjar

10

4. (1819). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt, og gerði grein fyrir hugmyndum og tillögum um staðsetningu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Einnig sátu fundinn Stefán Veturliðsson, verkfræðingur, Guðbjörg Brá Gísladóttir, verkfræðingur og Kári Jónsson, íþróttafulltrúi.

Bæjarráð Garðabæjar

11

4. (1819). fundur

Dómnefnd hefur yfirfarið umsóknir frá eftirfarandi aðilum um þátttöku í lokuðu altútboði.

Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379
Eykt ehf., kt. 560192-2319
Ístak hf., kt. 430214-1520
Mannverk ehf., kt. 411112-0200 1)
Munck á Íslandi, kt., 701013-0340

1) Fyrirvari um lokaskil gagna.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi fimmtudaginn 1. febrúar nk.

Bæjarráð Garðabæjar

12

3. (1818). fundur

Eftirfarandi umsóknir bárust um þátttöku í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379
Eykt ehf., kt. 560192-2319
Ístak hf., kt. 430214-1520
Mannverk ehf., kt. 411112-0200
Munck á Íslandi, kt., 701013-0340

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

1. (823). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í dómnefnd vegna mats á umsóknum um þátttökurétt í alútboði á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúa, Björg Fenger, formann íþrótta- og tómstundaráðs, Baldur Ó. Svavarsson, varabæjarfulltrúa, Sigurður Bjarnason, fulltrúa UMF-Stjörnunnar og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, fulltrúa UMF-Álftaness.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

14

2. (1817). fundur

Bæjarráð samþykkir að að vísa til bæjarstjórnar að tilnefna fulltrúa í dómnefnd vegna mats á umsóknum um þátttökurétt í alútboði á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.

Bæjarráð Garðabæjar

15

48. (1814). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Stefán Veturliðason, verkfræðingur hjá VSB og gerði grein fyrir forvalsgögnum vegna lokaðs alútboðs á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa forval þar sem óskað er eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða.