21. (1836). fundur
21. (1836). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.06.2018
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1707051
01
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 400.000.000, verðtryggt með 2,60% föstum vöxtum.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1802019
02
Brúnás 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Yrsu Elenoru Gylfadóttur, kt. 201268-4949, leyfi til að byggja einbýlishús að Brúnási 10.
Málsnúmer 1707195
03
Keldugata 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vigni Frey Andersen, kt. 230371-5719, leyfi til að byggja einbýlishús að Keldugötu 3.
Málsnúmer 1804106
04
Melás 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fasteignafélaginu Hosiló ehf., kt. 531210-1900 leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvíbýlishús að Melási 9.
Málsnúmer 1805337
05
Urriðaholtsstræti 14-20 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa varðandi leiðréttingu á áður útgefnu byggingarleyfi til U 14-20 ehf., kt. 680717-1090, vegna byggingar á fjölbýlishúsi með 38 íbúðum að Urriðaholtsstræti 14-20.
Málsnúmer 1710299
06
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi beiðni um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn, dags. 25.05.18.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin veiti fyrir sitt leyti leyfi fyrir lagningu reiðstígs innan friðlands Vífilsstaðvatns
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um útgáfu á framkvæmdaleyfi fyrir reiðveg frá Kjóavöllum um Grunnuvatnaskarð að Vatnsásvegi sem er í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.
María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801358
07
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi eftirlit og skoðun á samstarfssamningum sveitarfélaga, ítrekuð beiðni, dags. 23.05.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara erindinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805371
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, 622. mál., dags. 30.05.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1805398
10
Bréf Leikskólans Akra varðandi verkefnið "Horft til framtíðar" og umsókn um stöðuaukningu, dags. 31.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar leikskólanefndar og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806004
11
Opnun tilboða í framkvæmdir við vatnsveitulagnir neðan Bakka- og Sunnuflatar og við Hafnarfjarðarveg.
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Háfell ehf. kr. 33.411.800
Auðverk ehf. kr. 34.734.000
Línuborun ehf. kr. 37.899.535
SS - verktak ehf. kr. 48.850.000
Stálborg ehf kr. 70.811.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Háfells ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806010
12
Bréf fyrirtækja á "Hálsasvæði" í Reykjavík um bættar strætósamgöngur, dags. 01.06.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til stjórnar Strætó bs. og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806012
13
Bréf Jafnréttisstofu varðandi skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum, dags. 29.05.18.
Málsnúmer 1806013
14
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi verkefnalýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn, dags. 29.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710169
15
Niðurstöður matsnefndar um fjölnota íþróttahús.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu matsnefndar um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda ÍAV á grundvelli tilboðs félagsins, ákvæða alútboðsgagna og niðurstöðu matnefndar um það sem betur má fara í tillögu bjóðanda.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að láta fara fram mat á áhrifum fjárfestingarinnar á fjárhag bæjarins samkvæmt 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.