Beint í efni

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi beiðni um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn, dags. 25.05.18.

Málsnúmer 1710299

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

21. (1836). fundur

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur að stofnunin veiti fyrir sitt leyti leyfi fyrir lagningu reiðstígs innan friðlands Vífilsstaðvatns

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um útgáfu á framkvæmdaleyfi fyrir reiðveg frá Kjóavöllum um Grunnuvatnaskarð að Vatnsásvegi sem er í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.

María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (1832). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Á fundi bæjarráðs þann 8. maí var erindi Hestamannafélagsins Spretts um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn, dags. 27.04.2018, tekið fyrir og vísað til umfjöllunar og meðferðar Skipulagsnefndar. Hestamannafélagið fer þess á leit við bæjaryfirvöld í Garðabæ að útgefið verði framkvæmdarleyfi til handa Hestamannafélaginu Spretti fyrir reiðveg frá Kjóavöllum um Grunnuvatnaskarð að Vatnsásvegi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að gefið verði út framkvæmdarleyfi fyrir reiðveg frá Kjóavöllum um Grunnuvatnaskarð að Vatnsásvegi þegar jákvæð umsögn Umhverfisstofnunar fyrir framkvæmd innan friðlandsin liggur fyrir sem og lýsing framkvæmdar sem sé í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (1831). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og meðferðar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

43. (1809). fundur

Afgreiðslu frestað þar sem deiliskipulag fyrir Heiðmerkursvæðið hefur ekki verið endanlega staðfest með birtingu auglýsingar B-deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl