43. (1809). fundur
43. (1809). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
07.11.2017
Kl. 08:00 - 09:35
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Haustakur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mánalind ehf., kt. 520515-1000 leyfi til að byggja einbýlihús að Haustakri 1.
02
Umsagnarbeiðni um umsókn um tímabundið áfengisleyfi vegna tónlistarveislu á Garðatorgi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
03
Bréf Sorpu bs. um rekstraráætlun 2018-2022, dags. 23.10.17.
04
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 06.10.17.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 1.513.549 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála.
Fylgiskjöl
05
Bréf Hestamannafélagsins Spretts um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn, dags. 27.10.17.
Afgreiðslu frestað þar sem deiliskipulag fyrir Heiðmerkursvæðið hefur ekki verið endanlega staðfest með birtingu auglýsingar B-deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
06
Bréf Garðakórsins um styrk, dags. 14.10.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Fylgiskjöl
07
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins um verndarsvæði í byggð - Garðahverfi, dags. 26.10.17.
Lagt fram bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem fallist er á tillögu Garðabæjar um að Garðahverfi á Álftanesi verði gert að verndarsvæði í byggð.
Fylgiskjöl
08
Bréf Fólksins í bænum varðandi ráðningu í stöðu skólastjóra Urriðaholtsskóla, dags. 03.11.17.
Lagður fram listi yfir umsækjendur um stöðu skólastjóra Urriðaholtsskóla.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir ráðningarferlinu og rökum fyrir þeirri niðurstöðu að ráða Þorgerði Önnu Arnardóttur, í stöðu skólastjóra Urriðaholtsskóla.
Fylgiskjöl
09
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði um úthlutun framlaga árið 2018, dags. 31.10.17.
10
Heilsuræktarstöð í Ásgarði - umsóknir í forvali
Í forvali bárust eftirfarandi umsóknir.
RFC ehf., kt. 710511-0120.
Laugar ehf., kt. 631098-2079.
Sporthöllin ehf., kt. 500108-1690.
Bæjarráð samþykkir að öllum ofangreindum aðilum verði boðin þátttaka í næsta stigi útboðs sem að setja fram hugmyndir í formi byggingarlýsingar og viðskiptamódels.
Fylgiskjöl
11
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)
Lögð fram tillaga um álagningu útsvars og tillaga um álagningu fasteignagjalda.