Beint í efni

Heilsuræktarstöð í Ásgarði - forval

Málsnúmer 1710028

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (832). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

27. (1842). fundur

Farið yfir skilmála tilboðs um uppbyggingu heilsuræktar í íþróttmiðstöðinni Ásgarði en á fundi bæjarráðs sem haldinn var 26. júní sl. var samþykkt að gefa Sporthöllinni ehf. og Laugum ehf. kost á að gefa tilboð í verkefnið.

Bæjarráð samþykkir skilmálana með minniháttar breytingum. Frestur til að skila tilboðum er til 21. ágúst 2018.

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1837). fundur

Lögð fram niðurstaða dómnefndar sem bæjarráð skipaði til að annast viðræður við þátttakendur, sem valdir voru í forvali um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingar aðstöðu til heilsuræktar í Ásgarði.

Dómnefndin hefur farið yfir tillögur frá eftirfarandi aðilum:

Sporthöllin ehf. (Sporthúsið)
Laugar ehf. (World Class)
RFC ehf. (Reebook Fitness Center)

Bæjarráð samþykkir tillögu dómnefndar um að tveimur aðilum, Sporthöllinni ehf. og Laugum ehf. verðið gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku með því að skila inn tilboði á grundvelli þeirra hugmynda sem settar hafa verið fram á fyrra stigi.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

35. fundur

Unnið er að útboði á rekstri heilsuræktarstöðvar í Ásgarði.

Unnið er að útboði á rekstri heilsuræktarstöðvar í íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Þrír aðilar haf nú verið valdir í forvali til að bjóða í slíkan rekstur og koma með sínar hugmyndir um útfærslu hans.

Bæjarráð Garðabæjar

06

44. (1810). fundur

Bæjaráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila sem fulltrúa í dómnefnd til að annast viðræður við þátttakendur, meta hugmyndir og gera tillögu til bæjarráðs um val á hugsanlegum samningsaðila vegna byggingar heilsuræktarstöðvar við Ásgarð.

Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi.
Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúi.

Bæjarráð Garðabæjar

07

43. (1809). fundur

Í forvali bárust eftirfarandi umsóknir.

RFC ehf., kt. 710511-0120.
Laugar ehf., kt. 631098-2079.
Sporthöllin ehf., kt. 500108-1690.

Bæjarráð samþykkir að öllum ofangreindum aðilum verði boðin þátttaka í næsta stigi útboðs sem að setja fram hugmyndir í formi byggingarlýsingar og viðskiptamódels.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

08

33. fundur

Óskað hefur verið eftir umsóknum um þátttöku í útboðsferli um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingu aðstöðu til heilsurækta í og við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Umsóknum skal skila fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. október 2017.

Sagt var frá kynningarfundi sem haldinn var í Ásgarði vegna forvals í tengslum við heilsuræktarmiðstöð í Ásgarði.
Fram kom að óskað hefur verið eftir umsóknum um þátttöku í opnu útboðsferli um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingu aðstöðu til heilsuræktar í og við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Umsóknum skal skilað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. október 2017.