33. fundur
33. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
18.10.2017
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1710163
01
Ragnheiður Tryggvadóttir-Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Vegna NM U19 í blaki 23. október 2017
ÍTG samþykkir að styrkja Ragnheiði Tryggvadóttur kt. 220498-3019 um kr. 20.000,- vegna ferðar á NM U19 23. október 2017.
Málsnúmer 1710028
02
Heilsuræktarstöð í Ásgarði - forval
Óskað hefur verið eftir umsóknum um þátttöku í útboðsferli um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingu aðstöðu til heilsurækta í og við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Umsóknum skal skila fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. október 2017.
Sagt var frá kynningarfundi sem haldinn var í Ásgarði vegna forvals í tengslum við heilsuræktarmiðstöð í Ásgarði.
Fram kom að óskað hefur verið eftir umsóknum um þátttöku í opnu útboðsferli um uppbyggingu, rekstur, fjármögnun og byggingu aðstöðu til heilsuræktar í og við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Umsóknum skal skilað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. október 2017.
Málsnúmer 1710173
03
Fjárhagsáætlun 2018 - ýmsir styrkir
Umræða um fjárhagsáætlun Garðabæjar vegna 2018. Samningar við félög ofl.
Umræða var um endurskoðun fjárhæða til hvatapeninga í fjárhagsáætlun 2018 svo tryggja megi aukið aðgengi ungmenna að íþróttaiðkun óháð efnahag foreldra.
Einnig var rætt um samninga við félög sem eru lausir um áramót, ferðastyrki og afreksstyrki. Rætt um að bæta leiktæki og þrektæki á opnum svæðum í samvinnu við umhverfisnefndina.
Málsnúmer 1705295
04
Erindi frá ungmennaráði
Kynning á ungmennaþingi Garðabæjar sem fram fer 8. nóvember 2017 í Tónlistarskóla Garðabæjar.
Ungmennaþing verður haldið í Tónlistarskóla Garðabæjar 8. nóvember nk. þar sem höfðað er til þátttöku unglinga á aldrinum 14-20 ára til að hafa áhrif á ákvarðanatöku í sveitarfélaginu.