Erindi frá ungmennaráði
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
13. fundur
Heimsókn fulltrúa Ungmennaráðs
Fulltrúar Unmennaráðs þau Hrannar Máni Ólafsson Garðaskóla, Askur Hrafn Hannesson FG, Valgerður Eyja Eyþórsdóttir Álftanessskóla, María Kristveig Björnsdóttir Sjálandsskóla og Tómas þór Jacobsen starfsmaður ráðsins mættu og sögðu frá starfi þess.
Mikill áhugi er meðal fulltrúa ráðsins á að opna "ungmennahús" í Garðabæ líkt og er í Hafnarfirði. Samgöngumál úr Urriðaholti og Álftanesi voru einnig rædd ásamt því að rætt var um hvernig hægt væri að virkja áhugasöm ungmenni til að bjóða sig fram í Ungmennaráðið.
Ákveðið var að óska eftir við forsvarsmenn ungmennahúsins í Hafnarfirði að taka á móti fulltrúum ÍTG og ungmennaráðs Garðabæjar til að kynna þá aðstöðu og starfsemi sem þar fer fram.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
7. fundur
Heimsókn fulltrúa ungmennaráðs til að ræða forvarnarmál og spjalla um málefni sem snúa að ungmennum í Garðabæ. Tómas Þór Jacobsen forstöðumaður Klakans í Sjálandsskóla hefur umsjón með ungmennaráði.
Ágúst Ingi Bragason formaður Ungmennaráðs Garðabæjar ræddi forvarnarmál og lagði áherslu á almenna fræðslu og að byrja hana nógu snemma, eða við 13 ára aldurinn. Lýsti hann ungmennaráð tilbúið til að vinna með bæjaryfirvöldum að hverskonar forvörnum.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
33. fundur
Kynning á ungmennaþingi Garðabæjar sem fram fer 8. nóvember 2017 í Tónlistarskóla Garðabæjar.
Ungmennaþing verður haldið í Tónlistarskóla Garðabæjar 8. nóvember nk. þar sem höfðað er til þátttöku unglinga á aldrinum 14-20 ára til að hafa áhrif á ákvarðanatöku í sveitarfélaginu.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
30. fundur
Fulltrúar ungmennaráðs Garðabæjar sitja fundinn og leggja fram mál sem brenna á ungu fólki.
Jóel Ísak Jóelsson og Freymar Örn Ómarsson fulltrúar ungmennaráðs lögðu fram spurningar sem brenna á ungu fólki í Garðabæ.
a. Ungmennaráð fagnar áformum um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Form. ÍTG upplýsti um stöðu málsins.
b. Ungmennaráð bendir á vanda ungs fólks við að taka þátt í viðburðum og frjálsri félagastarfsemi innan bæjarins vegna stopulla samgangna út á Álftanes á kvöldin og um helgar.
c. Spurt var um framkvæmdir við Ásgarðslaug og upplýsti íþróttafulltrúi um stöðu verksins.
d. Ungmennaráð bendir á þörf fyrir FOLF-völl í Garðabæ. ÍTG hefur verið að skoða hvar koma mætti upp slíkri aðstöðu á opnum svæðum í bænum. Kostnaður við 9 holu FOLF-völl er um 2 milljónir.
ÍTG hvetur Ungmennaráð til að beina erindum er varða almennt frístundastarfs til ráðsins eftir því sem þau koma upp.