Beint í efni

30. fundur

31.05.2017
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

30. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

31.05.2017

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Tómas Björnsson - aðalmaður
  • Sigrún María Jörundsdóttir - varamaður
  • Karl Jónas Smárason - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Fundurinn var haldinn í golfskála Odds á Urriðavelli.

Dagskrá

Málsnúmer 1705295

01

Erindi frá ungmennaráði

Fulltrúar ungmennaráðs Garðabæjar sitja fundinn og leggja fram mál sem brenna á ungu fólki.

Jóel Ísak Jóelsson og Freymar Örn Ómarsson fulltrúar ungmennaráðs lögðu fram spurningar sem brenna á ungu fólki í Garðabæ.

a. Ungmennaráð fagnar áformum um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Form. ÍTG upplýsti um stöðu málsins.

b. Ungmennaráð bendir á vanda ungs fólks við að taka þátt í viðburðum og frjálsri félagastarfsemi innan bæjarins vegna stopulla samgangna út á Álftanes á kvöldin og um helgar.

c. Spurt var um framkvæmdir við Ásgarðslaug og upplýsti íþróttafulltrúi um stöðu verksins.

d. Ungmennaráð bendir á þörf fyrir FOLF-völl í Garðabæ. ÍTG hefur verið að skoða hvar koma mætti upp slíkri aðstöðu á opnum svæðum í bænum. Kostnaður við 9 holu FOLF-völl er um 2 milljónir.

ÍTG hvetur Ungmennaráð til að beina erindum er varða almennt frístundastarfs til ráðsins eftir því sem þau koma upp.

Málsnúmer 1701152

02

Aukin fagmennska og gæði í æskulýðsstarfi sveitarfélaga

Óskað er eftir styrk að upphæð 600.000,- frá Garðabæ. Útbúið verður matstæki fyrir fólk í frístundastarfi og "handbók# sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.

ÍTG samþykkir að mæla með því við bæjarráð að styrkja verkefni Félags fagfólks í frístundaþjónustu við að útbúa matstæki fyrir fólk í frístundastarfi og "handbók" sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.

Málsnúmer 1705265

03

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um ferðastyrk: Róbert Karl Hlöðversson blaklandslið

ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí 2017 20.000,- kr. ferðastyrk til Róberts Karls Hlöðverssonar vegna landsliðsferðar í blaki.

Málsnúmer 1704208

04

19.júnísjóður 2017

Umsóknir um styrki í 19. júnísjóð

- Eflum körfuknattleiksiðkun stúlkna í Garðabæ. Umsókn frá barna og unglingaráði kknd Stjörnunnar.

Sérstaklega er ánægjulegt að tekist hefur að tvöfalda fjölda stúlkna í körfuboltanum og árgangar fæddir á árunum eftir 2007 eru þeir fjölmennustu í sögu deildarinnar. En þrátt fyrir fjölgun beggja kynja eru ennþá þrefalt fleiri drengir en stúlkur sem æfa körfu. Stúlkaflokkar eru því færri þar sem oft er nauðsynlegt að þjálfa tvo árganga samtímis til þess að nógu margar stúlkur séu á hverri æfingu.

- Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona

Með erindi þessu leita ég eftir stuðningi til að skapa mér betri umgjörð og aðstæður til undirbúnings fyrir þátttöku

á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu og þeirri baráttu að ávinna sér þátttökurétt þar.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar að upphæð kr. 80.000,- til að efla þátttöku ungra stulkna í körfuknattleik.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til Freydísar Höllu Einarsdóttur skíðakonu að upphæð kr. 180.000,- vegna undirbúnings fyrir þátttöku á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu og þeirri baráttu að ávinna sér þátttökurétt þar.

Málsnúmer 1705244

05

Umsókn fyrir 19. júní

Blaknámskeið fyrir konur.

Markmið verkefnisins væri það að bjóða uppá byrjendanámskeið í blaki fyrir konur á öllum aldri þar sem boðið væri uppá æfingar 2var í viku yfir tímabilið september - júní. Nánari lýsing í viðhengi merkt Lýsing á verkefni.

Rósa Dögg Ægisdóttir, Unnur Johnsen, Matthew Gibson

ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til blakdeildar Stjörnunnar að upphæð kr. 60.000,- til að efla þátttöku kvenna í blaki.

Málsnúmer 1705245

06

Umsókn fyrir 19. júní

Golfdagurinn 2017 Mánudagurinn 5. júní frá kl. 10-13 Markmið verkefnisins er að efla kvennagolf á Íslandi. Öllum konum er boðið að koma og prófa golf á þessum degi. Þetta hefur verið haldið nokkrum sinnum og alltaf hafa nokkur hundruð kvenna mætt á öllum aldri.

Andrea Ásgrímsdóttir og Hulda Birna Baldursdóttir stýra verkefninu en ásamt þeim taka fjölmargir PGA kennarar þátt ásamt afrekskylfingum.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til GKG að upphæð kr. 80.000,- til að efla þátttöku kvenna í golfi með opnum "golfdegi" 5. júní 2017.

Málsnúmer 1703076

07

Heilsueflandi samfélag Landlæknir

Til umræðu eru hugmyndir um að gera Garðabæ að "heilsueflandi" bæjarfélagi með formlegum hætti líkt og nágrannasveitarfélögin Kópavogur og Hafnarfjörður eru að gera.

Rætt var um hugmyndir um að gera Garðabæ að "heilsueflandi" bæjarfélagi með formlegum hætti líkt og nágrannasveitarfélögin eru að gera. Formaður ÍTG muni skoða málið nánar í samvinnu við formenn annarra nefnda bæjarins og íþróttafulltrúa.

Málsnúmer 1702152

08

Önnur mál ÍTG 2017

a) ...

b) ...

c) ...

a) Formaður Golfklúbbsins Odds Elín Hrönn Ólafsdóttir og framkvæmdastjóri félagsins Þorvaldur Þorsteinsson kynntu starfsemi Odds og framtíðaráform klúbbsins um stækkun vallarins. Áréttuðu þau beiðni um hækkun rekstrarstyrks með nýjum samningi við gerð fjárhagsáætlunar 2018.

b) Farið var yfir drög að hátíðardagskrá 17. júní.