Beint í efni

Önnur mál ÍTG 2017

Málsnúmer 1702152

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

34. fundur

a) Rætt um ungmennaþing Garðabæjar sem haldið var í fyrsta skipti 8. nóvember sl. Þingið tókst vel og margar áhugaverðar tillögur komu þar fram sem ungmennaráð mun koma áleiðs til nefnda bæjarins.
b) Formaður greindi frá vinnu sem er í gangi við að móta framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
c) Rætt um að í forsendum fjárhagsáætlunar Garðabæjar sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 2. nóvember sl. sé gert ráð fyrir að hvatapeningar hækki í 50.000 kr. fyrir hvert barna á árinu 2018.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

30. fundur

a) ...
b) ...
c) ...

a) Formaður Golfklúbbsins Odds Elín Hrönn Ólafsdóttir og framkvæmdastjóri félagsins Þorvaldur Þorsteinsson kynntu starfsemi Odds og framtíðaráform klúbbsins um stækkun vallarins. Áréttuðu þau beiðni um hækkun rekstrarstyrks með nýjum samningi við gerð fjárhagsáætlunar 2018.
b) Farið var yfir drög að hátíðardagskrá 17. júní.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

29. fundur

a) ...
b) ...

a) Ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ var tekin fyrir. Ákveðið var að bjóða fulltrúa ÍTG í ungmennaráði inn á næsta fund ÍTG.
b) Skýrt frá stöðu framkvæmda við velli á Ásgarsðssvæðinu og Hofsstaðavelli.
c) Sagt var frá vinnu starfshóps um fjölnota íþróttahús í Garðabæ.
d) Líðan barna í íþróttum - stefnt að opnum fundi ÍTG með erindum um líðan barna og stefnu í þjálfun barna.
e) Heilsueflandi samfélag - sagt frá vinnufundi á vegum landlæknisembættisins um heilsueflandi samfélag og hvað þarf til að koma því ferli formlega á.
f) Hjólabrautirnar sem settar voru upp í apríl við skólana hafa slegið í gegn.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

28. fundur

a.
b.
c.

a. Kynnt voru áform bæjarstjórnar um skipun starfshóps til undirbúnings byggingar fjölnota íþróttahúss fyrir knattspyrnu og fleiri íþróttir í Vetrarmýri. Starfshópurinn á að skila af sér minnisblaði í lok maí á þessu ári.
b. Stefnt er að opnum umræðufundi á vegum ÍTG með íþróttafélögum í Garðabæ um skipulag og stefnu varðandi íþróttaæfingar barna og unglinga.
c. Hjólabrautin "pumpan" sem ákveðið var að setja upp, er komin til landsins og verður skrúfuð saman á næstu dögum. Stefnt er að því að opna hana formlega fyrir páska. Brautin er færanleg en verður fyrst um sinn á leiksvæði milli Garðaskóla og Flataskóla.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

27. fundur

a) Kynning á stöðu framkvæmda við Ásgarðslaug.
b) Skíðasvæðið í Bláfjöllum og Skálafelli rætt.
c) Sundlaugarnótt var haldin í Álftaneslaug í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík. Gestir voru 240 á öllum aldri. Dagskrá var frá kl. 18:00-21:00 en opið til 23:00