28. fundur
28. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
22.03.2017
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Stjarnan samstarfssamningur 2017
Kynning framkvæmdastjóra Stjörnunnar á hugmyndum um þróunarverkefni í barna - og unglingastarfi félagsins.
Kynning framkvæmdastjóra Stjörnunnar á hugmyndum um þróunarverkefni í barna - og unglingastarfi félagsins samanber ákvæði í samsstarfssamningi félagsins við Garðabæ. Unnið er að kynningu á hugmyndunum innan félagsins.
02
Æfingavöllur Stjörnunnar - lagfæringar
Unnið er að útboði á lagfæringum á vallarsvæði Stjörnunnar í sumar. Meðfylgjandi eru drög að þeim verkum sem boðin verða út.
Kynnt voru áform um lagfæringar á æfingasvæði Stjörnunnar við Ásgarð. Framkvæmdir verða á svæðinu í sumar.
03
Álftanesvöllur, búnaður
Vegna lagfæringa á æfingavöllum við Ásgarð verður mikil þörf á keppnisvelli og æfingaaðstöðu á gervigrasinu á "Bessastaðavelli". Unnið er að því að bæta aðstöðu þar varðandi búnað s.s. varamannaskýli, vallarklukku/markatöflu ofl.
Vegna lagfæringa á æfingavöllum við Ásgarð verður mikil þörf á keppnisvelli og æfingaaðstöðu á gervigrasinu á "Bessastaðavelli". Unnið er að því að bæta aðstöðu þar varðandi búnað s.s. varamannaskýli, vallarklukku/markatöflu ofl.
04
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Helga María Vilhjálmsdóttir kt. 250495-2699 vegna HM á skíðum St. Moritz í Sviss 7. feb 2017
ÍTG samþykkti ferðastyrk að upphæð kr. 20.000.- til Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur kt. 250495-2699 vegna HM á skíðum í St. Moritz í Sviss 7. feb 2017.
05
Önnur mál ÍTG 2017
a.
b.
c.
a. Kynnt voru áform bæjarstjórnar um skipun starfshóps til undirbúnings byggingar fjölnota íþróttahúss fyrir knattspyrnu og fleiri íþróttir í Vetrarmýri. Starfshópurinn á að skila af sér minnisblaði í lok maí á þessu ári.
b. Stefnt er að opnum umræðufundi á vegum ÍTG með íþróttafélögum í Garðabæ um skipulag og stefnu varðandi íþróttaæfingar barna og unglinga.
c. Hjólabrautin "pumpan" sem ákveðið var að setja upp, er komin til landsins og verður skrúfuð saman á næstu dögum. Stefnt er að því að opna hana formlega fyrir páska. Brautin er færanleg en verður fyrst um sinn á leiksvæði milli Garðaskóla og Flataskóla.