27. fundur
27. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
08.02.2017
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Hanna Lilja Jóhannsdóttir - varamaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1701058
01
Afreksstyrkir 2017
Tvær umsóknir bárust vegna auglýsinga um afreksstyrki ÍTG 2017. Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona úr Ármanni hlýtur 250.000,- kr. og Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona úr Breiðabliki hlýtur 150.000,- kr.
Auk þeirra fá íþróttamenn Garðabæjar Harpa Þorsteinsdóttir og Dagfinnur Ari Normann 200.000,- kr. hvort. Alls er því úthlutað 800.000,- kr. að þessu sinni.
Málsnúmer 1702001
02
Umsókn um afreksstyrk Freydís Halla Einarsdóttir
ÍTG samþykkti á fundi sínum 8. febrúar 2017 að veita Freydísi Höllu Einarsdóttur kt 0310942329 skíðakonu úr Glímufélaginu Ármanni afreksstyrk að upphæð kr. 250.000,-
Málsnúmer 1702088
03
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona úr Breiðablik.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 8. febrúar 2017 að veita Irmu Gunnarsdóttur kt.0402982319 frjálsíþróttakonu úr Umf. Breiðablik afreksstyrk að upphæð kr. 150.000,-
Málsnúmer 1610091
04
Hjólabraut í almenningsgarð
Hugmynd að afþreyingu sem nýtist í starfi skóla og frístunda jafnt í skipulögðu starfi sem frjálsum leik. Hjólabrautin er færanleg en væri valinn staður á malbikuðu svæði við hlið körfuboltavallarins utan við Garðaskóla.
ÍTG samþykkir að festa kaup á færanlegri hjólabraut sem nýtist í starfi skóla og frístunda jafnt í skipulögðu starfi sem frjálsum leik. Hjólabrautin (Pumptrack) er færanleg en verður til að byrja með valinn staður á malbikuðu svæði við hlið körfuboltavallarins utan við Garðaskóla.
Málsnúmer 1702143
05
Tilnefning ÍTG í ungmennaráð 2017
ÍTG tilnefnir tvo einstaklinga, einn aðalmann og einn til vara í ungmennaráð Garðabæjar.
Samþykkt var að tilnefna Mána Magnússon kt. 170300-2970 sem aðalmann í ungmennaráð. Máni er nemandi í Verslunarskóla Íslands. Varamaður í ungmennaráð er tilnefnd Ingibjörg Iða Auðunnardóttir kt. 110500-3350. Ingibjörg Iða er nemandi við MR.
Málsnúmer 1702152
06
Önnur mál ÍTG 2017
a) Kynning á stöðu framkvæmda við Ásgarðslaug.
b) Skíðasvæðið í Bláfjöllum og Skálafelli rætt.
c) Sundlaugarnótt var haldin í Álftaneslaug í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík. Gestir voru 240 á öllum aldri. Dagskrá var frá kl. 18:00-21:00 en opið til 23:00