Beint í efni

Hjólabraut í almenningsgarð

Málsnúmer 1610091

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

27. fundur

Hugmynd að afþreyingu sem nýtist í starfi skóla og frístunda jafnt í skipulögðu starfi sem frjálsum leik. Hjólabrautin er færanleg en væri valinn staður á malbikuðu svæði við hlið körfuboltavallarins utan við Garðaskóla.

ÍTG samþykkir að festa kaup á færanlegri hjólabraut sem nýtist í starfi skóla og frístunda jafnt í skipulögðu starfi sem frjálsum leik. Hjólabrautin (Pumptrack) er færanleg en verður til að byrja með valinn staður á malbikuðu svæði við hlið körfuboltavallarins utan við Garðaskóla.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

23. fundur

Reiðhjól, hjólabretti og hjólaskautar geta nýtt slíka braut. Hægt að koma fyrir á afmörkuðu svæði s.s. í almenningsgarði eða á bílaplani. Færanleg ef vill.

Rætt var um mikilvægi þess að setja upp leiktæki fyrir áhugafólk um BMX hjól, línuskauta og fleira í tengslum við skipulagðan bæjargarð Garðabæjar. Slík leiktæki þurfa að vera miðsvæðis og með gott aðgengi til að þau nýtist öllum aldurshópum.
Hugmyndinni er vísað áfram til bæjarráðs vegna fjárhagsáætlunar 2017