29. fundur
29. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
27.04.2017
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1704208
01
19.júnísjóður 2017
Undirritun ársreiknings 19. júnísjóðs vegna kvennahlaups í Garðabæ
Skrifað var undir ársreikning 19. júnísjóðs vegna kvennahlaups í Garðabæ. Úthlutað verður úr sjóðnum í lok maí nk.
Málsnúmer 1704225
02
Pílufélag Garðabæjar
Pílufélag Garðabæjar óskar eftir aðstöðu til æfinga og keppni innan Garðabæjar.
Íþróttafulltrúa er falið að ræða við stjórnarmenn pílufélagsins um þeirra óskir.
Málsnúmer 1702152
03
Önnur mál ÍTG 2017
a) ...
b) ...
a) Ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ var tekin fyrir. Ákveðið var að bjóða fulltrúa ÍTG í ungmennaráði inn á næsta fund ÍTG.
b) Skýrt frá stöðu framkvæmda við velli á Ásgarsðssvæðinu og Hofsstaðavelli.
c) Sagt var frá vinnu starfshóps um fjölnota íþróttahús í Garðabæ.
d) Líðan barna í íþróttum - stefnt að opnum fundi ÍTG með erindum um líðan barna og stefnu í þjálfun barna.
e) Heilsueflandi samfélag - sagt frá vinnufundi á vegum landlæknisembættisins um heilsueflandi samfélag og hvað þarf til að koma því ferli formlega á.
f) Hjólabrautirnar sem settar voru upp í apríl við skólana hafa slegið í gegn.