19.júnísjóður 2017
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
30. fundur
Umsóknir um styrki í 19. júnísjóð
- Eflum körfuknattleiksiðkun stúlkna í Garðabæ. Umsókn frá barna og unglingaráði kknd Stjörnunnar.
Sérstaklega er ánægjulegt að tekist hefur að tvöfalda fjölda stúlkna í körfuboltanum og árgangar fæddir á árunum eftir 2007 eru þeir fjölmennustu í sögu deildarinnar. En þrátt fyrir fjölgun beggja kynja eru ennþá þrefalt fleiri drengir en stúlkur sem æfa körfu. Stúlkaflokkar eru því færri þar sem oft er nauðsynlegt að þjálfa tvo árganga samtímis til þess að nógu margar stúlkur séu á hverri æfingu.
- Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona
Með erindi þessu leita ég eftir stuðningi til að skapa mér betri umgjörð og aðstæður til undirbúnings fyrir þátttöku
á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu og þeirri baráttu að ávinna sér þátttökurétt þar.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar að upphæð kr. 80.000,- til að efla þátttöku ungra stulkna í körfuknattleik.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 31. maí sl. að veita styrk úr 19. júnísjóði til Freydísar Höllu Einarsdóttur skíðakonu að upphæð kr. 180.000,- vegna undirbúnings fyrir þátttöku á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu og þeirri baráttu að ávinna sér þátttökurétt þar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
29. fundur
Undirritun ársreiknings 19. júnísjóðs vegna kvennahlaups í Garðabæ
Skrifað var undir ársreikning 19. júnísjóðs vegna kvennahlaups í Garðabæ. Úthlutað verður úr sjóðnum í lok maí nk.