34. fundur
34. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
15.11.2017
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Tómas Björnsson - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1710282
01
Elítan félagsmiðstöð Álftanesskóla
Umsókn um styrk til búnaðarkaupa fyrir tónlistarstarf.
Erindi félagsmiðstöðvarinnar Elítunnar á Álftanesi varðandi búnaðarkaup var tekið fyrir. Samþykkt að vísa því til afgreiðslu fjárhagsáætlunar vegna búnaðarkaupa stofnana.
Málsnúmer 1711117
02
Íþróttahátíð Garðabæjar 7. jan 2018
Íþróttahátið Garðabæjar er fyrirhuguð í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 7. janúar 2018, kl. 13:00-15:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum á árinu 2017 og íþróttamenn Garðabæjar útnefndir.
Íþróttahátið Garðabæjar er fyrirhuguð í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 7. janúar 2018, kl. 13:00-15:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum á árinu 2017 og íþróttamenn Garðabæjar útnefndir. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum. Veitt verður ný viðurkenning fyrir "þjálfara ársins".
Málsnúmer 1702152
03
Önnur mál ÍTG 2017
a) Rætt um ungmennaþing Garðabæjar sem haldið var í fyrsta skipti 8. nóvember sl. Þingið tókst vel og margar áhugaverðar tillögur komu þar fram sem ungmennaráð mun koma áleiðs til nefnda bæjarins.
b) Formaður greindi frá vinnu sem er í gangi við að móta framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
c) Rætt um að í forsendum fjárhagsáætlunar Garðabæjar sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 2. nóvember sl. sé gert ráð fyrir að hvatapeningar hækki í 50.000 kr. fyrir hvert barna á árinu 2018.