Íþróttahátíð Garðabæjar 7. jan 2018
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
36. fundur
a) Kjör íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar
b) Heiðursviðurkenningar fyrir störf að íþrótta-, og æskulýðsmálum
c) Þjálfari ársins
d) Íþróttalið ársins
e) Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur hljóta 244 einstaklingar
f) Viðurkenningar fyrir árangur á erlendum vettvangi fá 20 einstaklingar
g) Viðurkenningar fyrir þátttöku með A-landsliðum fá 24 einstaklingar og með U-landsliðum 30 einstaklingar
Íþróttakona Garðabæjar 2017 er Andrea Sif Pétursdóttir fimleikakona Stjörnunni.
Íþróttakarl Garðabæjar 2017 er Pétur Fannar Gunnarsson Dansfélagi Reykjavíkur.
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að íþrótta-, og æskulýðsmálum hljóta Halldór Klemenzson GÁ og Guðrún Jónsdóttir Stjörnunni
Þjálfari ársins er Halldór Ragnar Emilsson
Íþróttalið ársins er meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum frá Stjörnunni.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur fá 244 einstaklingar
Viðurkenningar fyrir árangur á erlendum vettvangi fá 20 einstaklingar
Viðurkenningar fyrir þátttöku með A-landsliðum fá 25 einstaklingar og viðurkenningu fyrir þátttöku með yngri landsliðum fá 29 einstaklingar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
35. fundur
Farið yfir tilnefningar til íþróttamanna Garðabæjar 2017
Valið hverjir verða endanlega í kjöri.
Farið yfir dagskrárliði og verðlaunaveitingar.
Tímasetningin er 7. janúar kl. 13:00 í fimleikasalnum Ásgarði.
Farið var yfir tilnefningar til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2017. Sex konur og sex karlar verða tilnefnd. Kynning á þeim fer fram á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum yfir hátíðirnar. Vefkosning mun standa frá 28. desember til 3. janúar 2018. Kjörinu verður lýst við hátíðlega athöfn sunnudaginn 7. janúar kl. 13:00 í Ásgarði.
Íþróttahátíðin verður með sama sniði og undanfarin ár með tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Garðabæjar og fimleikasýningu. Fjöldi viðurkenninga verður veittur fyrir framúrskarandi árangur 2017. Viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum og þjálfari ársins verður valinn.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
34. fundur
Íþróttahátið Garðabæjar er fyrirhuguð í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 7. janúar 2018, kl. 13:00-15:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum á árinu 2017 og íþróttamenn Garðabæjar útnefndir.
Íþróttahátið Garðabæjar er fyrirhuguð í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 7. janúar 2018, kl. 13:00-15:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum á árinu 2017 og íþróttamenn Garðabæjar útnefndir. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum. Veitt verður ný viðurkenning fyrir "þjálfara ársins".