Beint í efni

35. fundur

20.12.2017
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

35. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

20.12.2017

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Tómas Björnsson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1711117

01

Íþróttahátíð Garðabæjar 7. jan 2018

Farið yfir tilnefningar til íþróttamanna Garðabæjar 2017

Valið hverjir verða endanlega í kjöri.

Farið yfir dagskrárliði og verðlaunaveitingar.

Tímasetningin er 7. janúar kl. 13:00 í fimleikasalnum Ásgarði.

Farið var yfir tilnefningar til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2017. Sex konur og sex karlar verða tilnefnd. Kynning á þeim fer fram á vef Garðabæjar og í Garðapóstinum yfir hátíðirnar. Vefkosning mun standa frá 28. desember til 3. janúar 2018. Kjörinu verður lýst við hátíðlega athöfn sunnudaginn 7. janúar kl. 13:00 í Ásgarði.

Íþróttahátíðin verður með sama sniði og undanfarin ár með tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Garðabæjar og fimleikasýningu. Fjöldi viðurkenninga verður veittur fyrir framúrskarandi árangur 2017. Viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum og þjálfari ársins verður valinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1710173

02

Fjárhagsáætlun 2018 - ýmsir styrkir

óskir um styrki og hækkun samninga við ýmis félög.

Þeir samstarfssamningar við frjáls félagasamtök sem hafa gildistíma til ársloka 2017 verða endurnýjaðir í byrjun næsta árs miðað við fjárheimildir nýsamþykktrar fjárhagsáætlunar bæjarins.

Málsnúmer 1712144

03

Stjörnuhlaupið styrkbeiðni

Beiðni hlaupahóps Stjörnunnar um endurnýjun á samstarfssamningi um Stjörnuhlaupið.

ÍTG samþykkir að halda áfram stuðningi við Stjörnuhlaupið og stefnir að endurnýjun samstarfssamnings um það í janúar nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1712070

04

Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Irma Gunnarsdóttir kt. 0402982319 sækir um ferðastyrk vegna NM í frjálsíþróttum 8.-12. júní 2017.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Irmu Gunnarsdóttur kt. 0402982319 vegna NM í frjálsíþróttum 8.-12. júní 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1712069

05

Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Irma Gunnarsdóttir kt. 0402982319 sækir um ferðastyrk vegna EM U20 í frjálsíþróttum 18.-24. júlí 2017.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Irmu Gunnarsdóttur kt. 0402982319 vegna EM U20 í frjálsíþróttum 18.-24. júlí 2017.

Málsnúmer 1712015

06

Ásthildur Gunnarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ásthildur Gunnarsdóttir kt. 1011842429 sækir um ferðastyrk vegna 2. umf. undankeppni HM kvenna í blaki 21.07.2017

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Ásthildar Gunnarsdóttur kt. 1011842429 vegna 2. umf. undankeppni HM kvenna í blaki 21.07.2017

Málsnúmer 1711154

07

Lengri opnunartími sundlauga

Erindi frá Andreu Róberts um að athuga með lengri opnunartíma í sundlaugum á kvöldin.

ÍTG telur hugmyndina athyglisverða og felur íþróttafulltrúa að gera tillögu að útfærslu ásamt því að meta kostnað við "lengdan opnunartíma" sundlaugarinnar í Ásgarði.

Málsnúmer 1710028

08

Heilsuræktarstöð í Ásgarði - forval

Unnið er að útboði á rekstri heilsuræktarstöðvar í Ásgarði.

Unnið er að útboði á rekstri heilsuræktarstöðvar í íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Þrír aðilar haf nú verið valdir í forvali til að bjóða í slíkan rekstur og koma með sínar hugmyndir um útfærslu hans.

Málsnúmer 1712178

09

Niðurstöður um rammaskipulag Vífilsstaðalands kynntar

Niðurstöður verða kynntar úr framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands í Ásgarði fimmtudaginn 21. desember kl. 15:30

Niðurstöður úr framkvæmdasamkeppni um rammaskipulag Vífilsstaðalands verða kynntar í Ásgarði fimmtudaginn 21. desember kl. 15:30

Málsnúmer 1712177

10

Hvatapeningar 2018 reglubreyting

Uppfæra þarf reglur um hvatapeninga vegna hækkunar úr 32.000,- kr. í 50.000,- kr á hvert barn 5 ára-18 ára

Rætt um hvatapeninga, skilyrði fyrir ráðstöfun og forvarnargildi þeirra. Uppfæra þarf reglur um Hvatapeninga 2018 vegna hækkunar úr 32.000,- kr. í 50.000,- kr á hvert barn 5 ára til 18 ára.