Beint í efni

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um tillögu um styrk til að vinna handbók sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.

Málsnúmer 1701152

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

21. (1787). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að veita Félagi fagfólks í frítímaþjónustu styrk allt að fjárhæð kr. 600.000 til að vinna að framgangi verkefnis til að efla fagmennsku í frístundastarfi sveitarfélaga. Bæjarstjóra falin afgreiðsla málsins.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

30. fundur

Óskað er eftir styrk að upphæð 600.000,- frá Garðabæ. Útbúið verður matstæki fyrir fólk í frístundastarfi og "handbók# sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.

ÍTG samþykkir að mæla með því við bæjarráð að styrkja verkefni Félags fagfólks í frístundaþjónustu við að útbúa matstæki fyrir fólk í frístundastarfi og "handbók" sem nýtist sem kennslubók í frístundastarfi.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

29. fundur

Lagt fram til kynningar, mat skólanefndar að verkefnið sé þarft áhugavert.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

2. (1768). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar, mannréttinda- og forvarnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl