2. (1768). fundur
2. (1768). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.01.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1610230
01
Brekkugata 13-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja íbúð í parhúsi að Brekkugötu 13.
Málsnúmer 1610233
02
Brekkugata 15-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Straumvirki ehf., kt. 650190-1819, leyfi til að byggja íbúð í parhúsi að Brekkugötu 15.
Málsnúmer 1610243
03
Kinnargata 19-25-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mannvirki ehf., kt. 431014-1060, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 5 íbúðum að Kinnargötu 19-25.
Málsnúmer 1608510
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna skiptingu eignar á lóðinni við Hörgatún 1
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna skiptingu eignar á lóðinni við Hörgatún 1.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust.
Málsnúmer 1610043
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna skiptingu eignar á lóðinni við Hrísholt 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir.
Lagt fram bréf Garðars Garðarsson, íbúa að Hrísholti 7 þar sem vakin er athygli á að í breytingunni felist meiriháttar breyting á skipulagi hverfisins og geti hún því ekki talist óveruleg eins og bókað er í fundargerð skipulagsnefndar. Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1405177
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við samþykkt tillögu að deiliskipulagi fyrir Ásbúð og Holtsbúð.
Lögð fram.
Málsnúmer 1610132
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á skipulagi Akra vegna lóðanna við Breiðakur 2-4 og 6-8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðanna við Breiðakur 2-4 og 6-8 sem gerir ráð fyrir að í stað bílastæða milli húsanna komi bílageymsla í kjallara.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust.
Málsnúmer 1612105
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegt frávik frá deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna breytinga á húsnæði við Bakkarflöt 3 þó að bygging fari lítillega út fyrir byggingarreit en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varða neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1612146
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar um að auglýsa að nýju deiliskipulag fyrir Arnarnes.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.
Málsnúmer 1609347
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna útgáfu á byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Blikanes 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 10. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1612107
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stofnun lóðar fyrir spennustöð við Vesturhraun 5a.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stofnun nýrrar lóðar fyrir spennustöð, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1701174
12
Bréf Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum varðandi kjaramál, dags. 09.01.17.
Málsnúmer 1609321
13
Drög að endurnýjun samstarfssamnings Garðabæjar og UMF Stjörnunnar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamning við UMF- Stjörnuna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701166
14
Bréf Minjastofnunar Íslands um skráningu menningarminja, dags. 10.01.17.
Í bréfinu er farið fram á skil á gögnum vegna skráningar menningarminja
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra og til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701152
15
Bréf Félags fagfólks í frítímaþjónustu varðandi þátttöku í verkefni um að efla fagmennsku í frístundastarfi sveitarfélaga, dags. 09.01.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar, mannréttinda- og forvarnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701004
16
Bréf Sorpu bs. um athugasemdir við bréf Umhverfisstofnunar varðandi gas- og jarðgerðarstöð o.fl., dags. 09.01.17.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701170
17
Drög að kaupsamningi um fasteignina að Brúnási 12.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.
Málsnúmer 1701027
18
Bréf Regins hf. varðandi frumtillögur að breytingum á skipulagi miðbæjar vegna Garðatorgs 1, dags. 06.01.17.
Í bréfinu eru kynntar tillögur um endurskoðun á núverandi verslunarsvæði við Garðatorg 1 ásamt því að bæta við nýjum rýmum í nýbyggingu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701117
19
Bréf Regins hf. varðandi bílastæði við Garðatorg, dags. 03.01.17.
Í bréfinu eru kynntar tillögur um úrbætur varðandi sýnileika og nýtingu bílastæða við Garðatorg.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701175
20
Bréf Hjálparsveitar skáta og Skátafélagsins Vífils um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2017, dags. 11.01.17.
Bæjarráð samþykkir að veita skátafélögunum styrk að fjárhæð kr. 3.437.002 til greiðslu fasteignagjalda árið 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1509343
21
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um áætlun varðandi útskiptingu á kurluðu dekkjagúmmí á leik- og íþróttavöllum, dags. 06.01.17.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir áætlun og aðgerðum Garðabæjar varðandi útskiptingu á kurluðum dekkjagúmmí á leik- og íþróttavöllum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611189
22
Niðurstöður umræðu á Alþingi varðandi ákvörðun kjararáðs.
Bæjarstjóri kynnti niðurstöðu Alþingis að breyta ekki ákvörðun kjararáðs um laun þingmanna en þau hafa verið til viðmiðunar við ákvörðun launa bæjarfulltrúa og fulltrúa í nefndum bæjarstjórnar.
Málið rætt.