Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes.

Málsnúmer 1612146

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (838). fundur

Á fundi bæjarstjórnar 15.03. sl. var samþykkt tillaga skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes. Tillagan var auglýst og bárust sex athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til og liggja fyrir svör við athugasemdum. Tillaga var tekin til meðferðar að nýju vegna ábendinga í bréfi Skipulagstofnunar, dags. 28. maí 2018. Tillögunni fylgja húsakönnun og umsögn Minjastofnunar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

13. fundur

Málið tekið fyrir að nýju eftir að Hornsteinar hafa uppfært greinargerð deiliskipulags Arnarness eftir ábendingar Skipulagsstofnunar í bréfi frá 28. maí síðastliðinn. Frá því að málið var tekið fyrir síðast hefur greinargerðin verið uppfærð, vinnu við húsakönnun er lokið og umsögn Minjastofnunar liggur fyrir auk þess sem búið er að uppfæra fornleifaskráningu í samræmi við gildandi staðla.
Lagt er fram deiliskipulag Arnarness, greinargerð og skipulagsskilmálar, deiliskipulagsuppdráttur, skýringaruppdráttur og húsakönnun. Ásamt bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 28. maí 2018, og drög að bréfi til Skipulagsstofnunar vegna málsins. Einnig er umsögn Minjastofnunar lögð fram, tölvupóstur dags. 15.10.2018.
Það er mat skipulagsráðgjafa að breytingarnar kalli ekki á endurauglýsingu. Skipulagsnefnd tekur undir mat skipulagsráðgjafa samþykkir framlagðar breytingar og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (832). fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

9. fundur

Lögð fram tillaga að lagfærðri greinargerð deiliskipulags Arnarness þar sem brugðist hefur verið við ábendingum Skipulagsstofnunar i erindi dags 28.maí sl.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu húsakönnunar Arnarness og samráðsfundi með Minjastofnun vegna hennar.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð og beinir því til skipulagsstjóra að láta fullvinna húsakönnun þá sem unnin var árið 2014. Ef niðurstaða húsakönnunar kallar á deiliskipulagbreytingu skal skipulagsstjóri leggja fram tillögu þess efnis.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes. Tillagan var auglýst og bárust sex athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

07

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes. Tillagan var auglýst og bárust sex athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.október til 27.nóvember 2017. Lögð fram 6 erindi með athugasemdum sem bárust innan athuugasemdafrests. Lögð fram tillaga að svörum við athugasemdum og tillögu að viðbrögðum við þeim. Athugsemdir kalla aðeins á lítilsháttar lagfæringar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með þeim lagfæringum sem fram koma í tillögu að svörum. Skipulagsstjóra falið að senda svör við athugasemdum til þeirra sem það gerðu og tillöguna ásamt fylgigögnum til Skipulagsstofnunar til athugunar.

Bæjarráð Garðabæjar

09

47. (1813). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

15. fundur

Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa við auglýsta tillögu.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.

Bæjarráð Garðabæjar

14

2. (1768). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

1. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness sem er óbreytt frá áður samþykktu deiliskipulagi hverfisins að öðru leyti en því að nú er gert ráð fyrir 2 x 6 raðhúsálóðum efst í Hegranesi í stað 4 einbýlishúsa.
Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar með ofangreindri breytingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Fallið er frá lýsingu og forkynningu þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi.