10. (1825). fundur
10. (1825). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
13.03.2018
Kl. 08:00 - 09:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1803127
01
Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu - niðurstöður samráðshóps SSH og Vegagerðarinnar.
Á fund bæjarráðs mætti Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins og kynnti niðurstöður samráðshóps SSH, Vegagerðarinnar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu til 2030.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711152
02
Ársreikningur Garðabæjar 2017.
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhaldsdeildar mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2017, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður. Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2017 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 15. mars og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 5. apríl 2017.
Málsnúmer 1612146
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes. Tillagan var auglýst og bárust sex athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1802149
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna göngustígs við lóðirnar að Unnargrund 16 og 18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem gert er ráð fyrir að felldur verði niður göngustígur milli lóða við Unnargrund. Með vísan til heimildar í 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki aðra en hagsmuni sveitarfélagsins og umsækjanda.
Málsnúmer 1710094
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Laugavegur-Skipholt.
Lögð fram.
Málsnúmer 1802369
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, iðnaður og önnur landfrek starfsemi
Lögð fram.
Málsnúmer 1803108
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu á tillögu fyrir nýtt deiliskipulag á norðurnesi Álftaness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat skipulagsins samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Málsnúmer 1704011
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um deiliskipulag Holtstúns á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Holtstúns á Álftanesi. Samkvæmt heimild í 2. mgr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar og kynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.
Málsnúmer 1711043
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1802150
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Víkurgötu 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Víkurgötu 11 og að leyft verði að hafa einfaldan bílskúr í stað þess að hafa tvöfaldan eins og skilmálar kveða á um. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1801385
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1801191
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi háholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 2-18.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi háholts Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 2-18 þar sem lagt er til að leyfa tilfærslu á byggingarmagni milli lóða. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1801202
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Haukanes 12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Haukanesi 12 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda aðeins um að ræða breytingar á innra skipulagi sem varða ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1801229
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Garðprýði 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Garðprýði 7, en byggingin fer lítillega út fyrir byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1703045
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar um kynningu tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund þar sem tillagan verður kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.
Málsnúmer 1802370
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, breytt afmörkun landnotkunar.
Lagt fram.
Málsnúmer 1712136
17
Bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi verkefnislýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk á Álfsnesvík, dags. 07.03.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1702066
18
Bréf svæðisskipulagsnefndar varðandi samþykkt tillögu um breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040 - samgöngu- og þróunarásar Borgarlínu, dags. 06.03.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803184
19
Athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtarmörkum samkvæmt svæðisskipulagi
Bæjarráð samþykkir að vísa til skipulagsnefndar að vinna að tillögu til svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags vegna athafnasvæðis á Rjúpnahæð.
Málsnúmer 1803147
20
Opnun tilboða í slátt og hirðingu opinna svæða í Garðabæ 2018-2020.
Lögð eruð fram eftirfarandi tilboð í slátt og hirðingu opinna svæða í Garðabæ 2018-2020.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3 Samtals
Garðlist ehf. kr. 19.953.135 kr. 15.393.257 kr. 15.429.832 kr. 50.776.224
Ísl. Gámafél. kr. 30.726.566 kr. 26.553.133 kr. 28.054.240 kr. 85.333.939
Kostnaðaráætl kr. 14.883.895 kr. 14.620.221 kr. 13.325.764 kr. 42.829.880
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Garðlistar ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802038
21
Minnisblað tækni- og umhverfissviðs um endurnýjun á opnum leikvöllum í Garðabæ 2018, dags. 02.02.18.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs, umhverfisnefndar, ungmennaráðs og til fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803067
22
Framlag til stjórnmálasamtaka 2018
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Framsóknarflokkur kr. 231.301
Sjálfstæðisflokkur kr. 2.058.576
Björt framtíð kr. 517.798
Samfylking kr. 346.951
Fólkið í bænum kr. 345.374
Samtals: kr. 3.500.000
Málsnúmer 1803172
23
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál., dags. 08.03.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1803138
24
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum, 236. mál., dags. 06.03.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1803140
25
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum). 178. mál., dags. 06.03.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1803061
26
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi innleiðingu blágrænna regnvatnslausna í Reykjavík, dags. 26.02.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar umhverfisnefndar og til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801043
27
Svar við fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur, bæjarfulltrúa varðandi leigu á íbúðum í eigu Garðabæjar.
Lagt fram.