Beint í efni

Opin leiksvæði: endurnýjun

Málsnúmer 1802038

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

7 (22-26). fundur

Minnisblað um endurnýjun leiksvæða lagt fram og samþykkt.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

38. fundur

kynning á áætlun um viðhald og uppbyggingu opinna leiksvæða í Garðabæ.
Sagt frá kaupum á æfingatækjum fyrir almenning til að setja upp á þremur stöðum í bænum. 1) við enda Sunnuflatar á mótum hlaupastíganna, 2) við ós Arnarneslækjar þar sem vatnsfonturinn er við göngu og hjólastíginn og 3) á Álftanesi við kvenfélagsgarðinn.
Einnig var sagt frá vinnu við bæjargarðinn þar sem settur verður "Ærslabelgur", mjög vinsælt leiktæki barna.

Kynning á áætlun um viðhald og uppbyggingu opinna leiksvæða í Garðabæ. ÍTG fagnar að slík úttekt hafi verið gerð og leggur til að hafist verður handa þar sem þörfin er hvað mest.
Sagt frá kaupum á æfingatækjum fyrir almenning til að setja upp á þremur stöðum í bænum. 1) við enda Sunnuflatar á mótum hlaupastíganna, 2) við ós Arnarneslækjar þar sem vatnsfonturinn er við göngu og hjólastíginn og 3) á Álftanesi við kvenfélagsgarðinn (líklega).
Einnig var sagt frá vinnu við bæjargarðinn þar sem settur verður "Ærslabelgur", mjög vinsælt leiktæki barna.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

43. fundur

Umhverfisnefnd fagnar úttekt á leiksvæðum bæjarins. Umhverfisnefnd leggur til að hafist verði handa við endurnýjun þar sem flest börnin eru og að málefnið komist inná fjárhagsáætlun 2019.

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (1825). fundur

Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs, umhverfisnefndar, ungmennaráðs og til fjárhagsáætlunar.

Fylgiskjöl