Beint í efni

38. fundur

21.03.2018
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

38. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

21.03.2018

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Tómas Björnsson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1802004

01

Arnór Gauti Árnason - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Vegna NM fimleikalandsliðs 11. apríl 2018

Ferðastyrkur að upphæð 20.000,- vegna ferðar á NM í fimleikum 11. apríl.

Styrkurinn er greiddur út að lokinni ferðinni.

Málsnúmer 1802339

02

Ásgeir Jón Guðbjartsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Vegna HM í snóker 13.-18. mars 2018

ÍTG samþykkti á fundi sínum 21. mars að veita Ásgeiri Jóni Guðbjartssyni kt. 1612684539, ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna HM í snooker á Möltu 13.3.2018.

Málsnúmer 1803169

03

Birta Björnsdóttir styrkumsókn

Umsókn um ferðastyrk til að sækja Safe Sport International ráðstefnuna.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 21. mars að veita Birtu Björnsdóttur kt. 221190-2709, ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna Safe Sport International ráðstefnu í Madrid dagana 6-7. apríl (http://www.safesportinternational.com/1st-international-conference-for-safe-sport/). Á ráðstefnunni verður rætt hvernig hægt er að koma í veg fyrir andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart íþróttafólki.

Styrkurinn verður greiddur út að ferðinni lokinni.

Málsnúmer 1802038

04

Opin leiksvæði

kynning á áætlun um viðhald og uppbyggingu opinna leiksvæða í Garðabæ.

Sagt frá kaupum á æfingatækjum fyrir almenning til að setja upp á þremur stöðum í bænum. 1) við enda Sunnuflatar á mótum hlaupastíganna, 2) við ós Arnarneslækjar þar sem vatnsfonturinn er við göngu og hjólastíginn og 3) á Álftanesi við kvenfélagsgarðinn.

Einnig var sagt frá vinnu við bæjargarðinn þar sem settur verður "Ærslabelgur", mjög vinsælt leiktæki barna.

Kynning á áætlun um viðhald og uppbyggingu opinna leiksvæða í Garðabæ. ÍTG fagnar að slík úttekt hafi verið gerð og leggur til að hafist verður handa þar sem þörfin er hvað mest.

Sagt frá kaupum á æfingatækjum fyrir almenning til að setja upp á þremur stöðum í bænum. 1) við enda Sunnuflatar á mótum hlaupastíganna, 2) við ós Arnarneslækjar þar sem vatnsfonturinn er við göngu og hjólastíginn og 3) á Álftanesi við kvenfélagsgarðinn (líklega).

Einnig var sagt frá vinnu við bæjargarðinn þar sem settur verður "Ærslabelgur", mjög vinsælt leiktæki barna.

Að loknum fundi var gengið um búningsklefa sundlaugarinnar og litið yfir nýuppgerða sundlaugina. Unnið er að frágangi á stéttum kringum laugar og potta, auk flísalagnar í gufubaði.