Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2017 (síðari umræða)

Málsnúmer 1711152

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (828). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2017.

Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2017 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (827). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2017. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Á fundinum er lögð fram skýrsla endurskoðenda.

Til máls tóku:

Áslaug Hulda Jónsdóttir og Gunnar Valur Gíslason.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1825). fundur

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhaldsdeildar mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2017, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður. Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2017 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 15. mars og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 5. apríl 2017.

Bæjarráð Garðabæjar

04

4. (1819). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.391.144.