4. (1819). fundur
4. (1819). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
30.01.2018
Kl. 08:00 - 09:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - kynning skipulagsarkitekta.
Á fund bæjarráðs mætti Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt, og gerði grein fyrir hugmyndum og tillögum um staðsetningu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Einnig sátu fundinn Stefán Veturliðsson, verkfræðingur, Guðbjörg Brá Gísladóttir, verkfræðingur og Kári Jónsson, íþróttafulltrúi.
02
Fjölnota íþróttahús - niðurstöður dómnefndar.
Dómnefnd hefur yfirfarið umsóknir frá eftirfarandi aðilum um þátttöku í lokuðu altútboði.
Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379
Eykt ehf., kt. 560192-2319
Ístak hf., kt. 430214-1520
Mannverk ehf., kt. 411112-0200 1)
Munck á Íslandi, kt., 701013-0340
1) Fyrirvari um lokaskil gagna.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi fimmtudaginn 1. febrúar nk.
03
Ársreikningur Garðabæjar 2017 - tillaga um afskriftir á kröfum.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.391.144.
04
Framkvæmdaáætlun samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Bæjarverkfræðingur fór yfir framkvæmdaáætlun 2018 og gerði grein fyrir stöðu þeirra og áætluðum framkvæmdatíma.
Fylgiskjöl
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingahús við Garðatorg.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Bréf Magnúsar Guðmundssonar (afrit) varðandi breytingar á leiðakerfi strætó, leið nr. 21, dags, 23.01.18.
Lagt fram til kynningar.
07
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi eftirlit og skoðun á samstarfssamningum sveitarfélaga, dags. 25.01.18.
08
Bréf Strætó bs. varðandi heimild til lántöku vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við Brú lífeyrissjóð, dags. 26.01.18.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja heimild til stjórnar Strætó bs. til að taka lán allt að fjárhæð 1,0 milljarð til að mæta skuldbindingum við Brú lífeyrissjóð. Samþykktin er með fyrirvara um samþykki allra aðildarsveitarfélaga Strætó bs.