Lántökuheimild vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við Brú lífeyrissjóð.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að breyta samþykkt um heimild til lánveitingar Strætó bs. þannig að fram komi að lánstími verði allt að 38 ár.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (1821). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að breyta samþykkt um heimild til lánveitingar Strætó bs. þannig að fram komi að lánstími verði allt að 38 ár.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
2. (824). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Strætó bs. kt. 500501-3160 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.100.000.000 kr. til allt að 35 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Strætó bs. Garðabær veitir lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til að ljúka uppgjöri Strætó bs. við Brú lífeyrissjóð sem gert er vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, sbr. lög nr.127/2016.
Garðabær skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Strætó bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta Strætó bs. sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Garðabær selji eignarhlut í Strætó bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Garðabær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.]
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Garðabæjar veitingu ofangreindrar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
Samþykkt þessi er með fyrirvara um að öll önnur sveitarfélög sem eiga Strætó bs. samþykki einfalda ábyrgð vegna ofangreindrar lántöku.
Bæjarráð Garðabæjar
04
4. (1819). fundur
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja heimild til stjórnar Strætó bs. til að taka lán allt að fjárhæð 1,0 milljarð til að mæta skuldbindingum við Brú lífeyrissjóð. Samþykktin er með fyrirvara um samþykki allra aðildarsveitarfélaga Strætó bs.