3. (825). fundur
3. (825). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
15.02.2018
Kl. 17:00 - 17:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. febrúar 2018 er lögð fram.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hann flytur ásamt Sigríði Huldu Jónsdóttur.
?Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa fimm manna starfshóp til að kanna grundvöll fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ. Við áframhaldandi uppbyggingu bæjarfélagsins á næstu árum og áratugum munu menning og listir, falleg náttúra, upplandið, hraunin, tjarnir, lækir og strandlengjan ásamt ríkri menningar- og söguarfleifð Garðabæjar leika stórt hlutverk.
Starfshópurinn skal skipaður þremur fulltrúum tilnefndum af bæjarráði og tveimur fulltrúum frá hagsmunaaðilum. Bæjarráð skal setja starfshópnum erindisbréf.
Starfsmaður hópsins verði upplýsingastjóri Garðabæjar en aðrir embættismenn Garðabæjar starfa með hópnum eftir þörfum. Starfshópurinn skal skila greinargerð til bæjarráðs fyrir lok apríl 2018.?
Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar
Greinargerð:
Bæjarstjórn Garðabæjar vill stuðla að því að efla Garðabæ enn frekar sem menningarbæ í framtíðinni. Allt samfélagið, þ.m.t. einstaklingar, félagasamtök, söfn og skólar, drífur menningarlífið áfram og leggst á eitt um að það verði fjölskrúðugt og líflegt.
Í öllu skólasamfélagi Garðabæjar, í söfnum og meðal öflugra frjálsra félagasamtaka í bænum er gríðarleg gróska og mikilvægt starf unnið við eflingu menningar og lista. Heima fyrir vinna Garðbæingar á öllum aldri að ýmiss konar listsköpun. Félagsstarf eldri borgara er umfangsmikið og kórastarf í bænum er rómað. Það er mikilvægt að virkja þennan mikla frumkvöðla- og félagsauð sem býr í bæjarbúum og hinum fjölmörgu félagasamtökum okkar í bænum ásamt því að styðja við öflugt list- og menningarstarf ungmenna og skólanna í Garðabæ.
Vert er að starfshópurinn skoði einnig möguleika Garðbæinga á miðlun menningar- og söguarfleifðar bæjarfélagsins, fræðslu, náttúru- og fuglaskoðun o.fl., t.d. í tengslum við menningar- og náttúrutengda ferðaþjónustu.
Horft verði til þess að sameina undir einu þaki menningar- og fræðamiðstöð.
Hlutverk starfshópsins er að vinna grófa þarfagreiningu þar sem horft er til nýtingar hússins fyrir fjölbreytta menningar- og fræðastarfsemi fyrir alla aldurshópa, s.s. aðstöðu fyrir söfn bæjarins, tónlist, myndlist, leiklist, dans og skapandi greinar almennt, ráðstefnur, kórastarf, tónleikahald og sýningar; frumkvöðlastarfsemi og vettvang ungs fólks og eldri borgara bæjarins til að njóta menningar og lista. Starfshópurinn skal leggja til valkosti um staðsetningu, m.a. með umferðarmál og aðgengi að leiðarljósi.
Lögð er áhersla á að starfshópurinn skili niðurstöðum sínum til bæjarráðs eigi síðar en í lok apríl 2018.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
?Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði ásamt upplýsingadeild að skoða þær lausnir sem í boði eru í átt til frekari snjallavæðingu sveitarfélagsins.?
Greinargerð:
Fjórða iðnbyltingin er hafin og tæknin þróast á ógnarhraða. Þessu fylgja ógnanir og tækifæri.
Tækifærin felast í því að við nýtum okkur tæknina til framfara. Til er ný útfærsla ljósastaura, snjallstaura, sem eru ekki aðeins ljósastaurar heldur rafhleðslustöð, eftirlitsmyndavél, veðurathugunarmælir, wi-fi sendir og skynjarar. Í notkun eru róbótar sem slá gras, merkja fótboltavelli og moka snjó. Hægt er að bjóða upp á stuðningsþjónustu í fjarbúnaði, komnar eru tæknilausnir fyrir kennara og nemendur sem hjálpa til við að opna og efla skólastarf.
Nýjar leiðir í upplýsingaveitum og rafræn samskipti við alla íbúa Garðabæjar styttir leiðir, eflir þjónustu og auðveldar samskipti.
Lagt er til að tækni- og umhverfissvið ásamt upplýsingadeild sveitarfélagsins taki saman minnisblað þar sem þær lausnir sem eru í boði eru kannaðar frekar ásamt kostnaði og mögulegum tímalínum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomnar tillögur.
Halldór Jörgensson, ræddi framkomnar tillögur.
Tillaga um menningar- og fræðamiðstöð samþykkt samhljóða
Tillaga um snjallvæðingu samþykkt samhljóða
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 5/2 ´18.
Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um samstarf o.fl. við skipulag á Vífilsstaðalandi
Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/2 ´18.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi ábendingar og athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillögu að nýju aðalskipulagi.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1801359 - Bréf Strætó bs. varðandi heimild til lántöku vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við Brú lífeyrissjóð, dags 26.01.18.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að breyta samþykkt um heimild til lánveitingar Strætó bs. þannig að fram komi að lánstími verði allt að 38 ár.
María Grétarsdóttir situr hjá.
2.4 - 1707058 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðanna við Hraunprýði 6-12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Garðahrauns í tilefni umsóknar um að um að breyta opnum bílskýlum í lokaðar bílgeymslur á lóðum við Hraunprýði 6-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.5 - 1711185 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hegranesi 28.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Hegranes 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið.
Fylgiskjöl
2.6 - 1302243 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi ábendingar og athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagfæringu á gögnum og umsögn vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við samþykkt bæjarstjórnar frá fundi 5. október 2017 á tillögu um aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 5. janúar 2018. Samþykkt tillaga með breytingum skal send að nýju til meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
2.7 - 1709351 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness þar sem fram koma helstu áherslur og stefna við deiliskipulagsgerðina og fyrirhugað skipulagsferli. Skipulagslýsingin skal send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila ásamt því að kynna hana almenningi.
Fylgiskjöl
2.9 - 1801265 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 - Breytt lega Ásvallabrautar og teng. við Kaldárselsveg
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar er varðar breytta legu Ásvallarbrautar og tengingu við Kaldársveg. Bæjarstjórn minnir á að komi til forkynningar tillögunnar samkvæmt 2. mgr. ofangreinds ákvæðis ber að leita umsagnar um tillöguna hjá aðliggjandi sveitarfélögum en mikilvægt er að í tillögunni sé gerð grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð leikskólanefndar frá 8/2 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skóladagatal 2018-2019 og 3. tl., skólaþing 2018.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/2 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., efnagreiningarniðurstöður MNÍ við Urriðavatn og Vífilsstaðavatn, 4. tl., örplast í neysluvatni, 6. tl., móttaka á plasti til endurvinnslu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 6. tl., móttaka á plasti til endurvinnslu.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 2/2 ´18.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., greiðslukerfi Strætó, 5. tl., niðurstöður vagnakaupaútboðs, 6. tl., fargjöld eldri borgara,7. tl., gæludýr í strætisvögnum.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., greiðslukerfi Strætó
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 26/1 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
09
Samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins.
Bæjarstjórn samþykkir samkomulag um uppgjör við Brú lífeyrissjóð sem felur í sér eftirfarandi skuldbindingar.
Greiðsla framlags í jafnvægisjóð kr. 224.566.134
Greiðsla framlags í lífeyrisaukasjóð kr. 1.033.759.330
Greiðsla framlags í varúðarsjóð kr. 111.214.928
10
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðauki 1.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Tekin ný langtímalán (hækkun) kr. 1.369,540.000
Launakostnaður (hækkun) kr. 40.020.000
Skammtímaskuldir (hækkun) kr. 247.911.000
Handbært fé í árslok (lækkun) kr. 40.020.000
11
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - lántaka.
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku allt að fjárhæð kr. 1.850.000.000 verðtryggt með 2,64% ávöxtunarkröfu. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), samkvæmt skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 160238, sbr. útgáfulýsingu, dags. 14. febrúar 2017.
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2020) sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. desember 2017 og með viðauka nr. 1 sem samþykktur var á fundi bæjarstjórnar í dag.
María Grétarsdóttir situr hjá.