Beint í efni

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 Viðaukar nr. 11 og nr. 12.

Málsnúmer 1707051

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

46. (1861). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 11 og viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun 2018. Um er að ræða breytingar vegna launakostnaðar á bæjarskrifstofum og breytingum á innri leigu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 11 og nr. 12 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 11

Bæjarskrifstofur laun kr. 23.600.000

Kostnaðarauka mætt með breytingu á innri leigu samtals að fjárhæð kr. 23.600.000.

Viðauki 12

Innri leiga (breyting) kr. 28.801.582

Ráðstafað samkvæmt viðauka 11 kr. 23.600.000

Rekstrarafgangur kr. -5.201.582

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

17. (839). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 9 og nr. 10 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 9.
Sorphreinsun kr. 15.000.0000 08-210-4943
Gasgerðarstöð kr. 24.700.0000 08-210-9911

Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á varasjóði um 32.500.000 og lækkun á handbæru fé um 7.200.000.

Varasjóður kr. 32.500.000 31-916-7179
Lækkun á handbæru fé kr. -7.200.000

Viðauki nr. 10.
Í samræmi við reglur um bókhald sveitarfélaga skal skipta kostnaði vegna barnaverndar í fleiri deildir.
Heildarkostnaður við barnavernd skv. fjárhagsáætlun 2018 var kr. 30.654.855. Heildarkostnaður eftir breytingu verður áfram sá sami en skiptist sem hér segir:
Barnavernd kr. 9.000.000 02-310
Fóstrun barna utan heimilis kr. 4.200.000 02-330
Úrræði á heimili vegna barna kr. 15.654.855 02-340
Annað vegna barnaverndar kr. 1.600.000 02-350
Persónuleg ráðgjöf og tilsjón kr. 200.000 02-370

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

03

42. (1857). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 9 og viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun 2018. Um er að ræða breytingar vegna kostnaðar við sorphreinsun og stofnframlag Sorpu bs. vegna gasgerðarstöðvar samkvæmt viðauka nr. 9 og breytingar á bókhaldsliðum barnaverndar samkvæmt viðauka 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 og nr. 10 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 9.
Sorphreinsun kr. 15.000.0000 08-210-4943

Gasgerðarstöð kr. 24.700.0000 08-210-9911

Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á varasjóði um 32.500.000 og lækkunar á handbæru fé um 7.200.000.

Varasjóður kr. 32.500.000 31-916-7179
Lækkun á handbæru fé kr. -7.200.000

Viðauki nr. 10.
Barnaverndarnefnd kr. 30.654.855 kr. 9.000.000 02-310
Fóstrun barna utan heimilis kr. 4.200.000 02-330
Úrræði á heimili vegna barna kr. 15.654.855 02-340
Annað vegna barnaverndar kr. 1.600.000 02-350
Persónuleg ráðgjöf og tilsjón kr. 200.000 02-370

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

15. (837). fundur


Bæjarstjórn samþykkir viðauka 8 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Flataskóli 23.300.000
Garðaskóli 31.000.000
Hofsstaðaskóli 34.600.000
Sjálandsskóli 31.000.000
Álftanesskóli 26.500.000
Bæjarból 2.000.000
Hæðaból 2.000.000
Kirkjuból 3.000.000
Lundaból 5.000.000
Sunnuhvoll 5.500.000
Flataskóla - leikskóladeild 300.000
Akrar 6.200.000
Krakkakot 6.100.000
Holtakot 5.000.000
Sumarvinna ungmenna 34.000.000
Bókasafn stöðugildi 2.000.000
Samtals 217.500.000

Varasjóður - lækkun 217.500.000

Bæjarráð Garðabæjar

05

39. (1854). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2018 en um er að ræða breytingar á launaliðum gunnskóla og leikskóla ásamt breytingu á sumarvinnu ungmenna og breytingu á stöðugildi á bókasafni.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.


Flataskóli 23.300.000
Garðaskóli 31.000.000
Hofsstaðaskóli 34.600.000
Sjálandsskóli 31.000.000
Álftanesskóli 26.500.000
Bæjarból 2.000.000
Hæðaból 2.000.000
Kirkjuból 3.000.000
Lundaból 5.000.000
Sunnuhvoll 5.500.000
Flataskóla - leikskóladeild 300.000
Akrar 6.200.000
Krakkakot 6.100.000
Holtakot 5.000.000
Sumarvinna ungmenna 34.000.000
Bókasafn stöðugildi 2.000.000
Samtals 217.500.000

Varasjóður - lækkun 217.500.000

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

12. (834). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (1848). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðaukum 4- 7 við fjárhagsáætlun 2018.

Viðauki 4 Snjómokstur og Strætó
Viðauki 5 HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi
Viðauki 6 Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla
Viðauki 7 Framlag til Hrafnistu, liðveisla, lengd viðvera, húsaleigubætur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 4-7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 4
Snjómokstur kr. 25.000.000
Strætó bs. - framlag kr. 27.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -52.000.000

Viðauki 5
HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi kr. 10.700.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -10.700.000

Viðauki 6
Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla kr. 5.000.000
Urriðaholtsskóli (lækkun) kr. -5.000.000

Viðauki 7
Framlag til Hrafnistu samkvæmt samningi kr. 25.500.000
Liðveisla fatlaðs fólks kr. 30.000.000
Lengd viðvera nemenda kr. 11.000.000
Húsaleigubætur kr. 6.500.000
Framlag Jöfnunarsjóðs (hækkun) kr. -12.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -61.000.000

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl. 09:05 og tók Gunnar Einarsson sæti á fundinum sem varamaður.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

08

33. (1848). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum málaflokkayfirlits janúar - júní 2018.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

11. (833). fundur

Gunnar Valur Gíslason kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 750.000.000, með lokagjalddaga þann 5. maí 2033, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu á grunnskóla í Urriðaholti sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Guðjóni Erling Friðrikssyni, bæjarritara Garðabæjar kt. 291154-3529, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

10

30. (1845). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 750.000.000, verðtryggt með 2,60% breytilegum vöxtum, sbr. viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2018. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

11

29. (1844). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2018 er varðar breytingar á framkvæmdayfirliti 2018.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Urriðaholtsskóli kr. 500.000.000
Fjölnota salur kr. 150.000.000
Ásgarður ? nýtt parketgólf kr. 60.000.000
Fjölnota íþróttahús (lækkun) kr. -270.000.000
Útilífsmiðstöð skáta (lækkun) kr. -20.000.000
Endurbætur sundlaugar í Ásgarði kr. 170.000.000
Álftanesskóli ? viðbygging kr. 160.000.000
Samtals ? hækkun kr. 750.000.000

Tekin ný langtímalán kr. 750.000.000

Bæjarráð Garðabæjar

12

22. (1837). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í málaflokkayfirliti fyrir tímabilið 01.01.18. - 30.04.18.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

9. (831). fundur

Gunnar Valur Gíslason, tók við stjórn fundarins að nýju.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði tillögu um lántöku á fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt verði með veði í tekjum sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn Garðabæjar, kt. 570169-6109 samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 400.000.000, með lokagjalddaga þann 05.04.2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið m.a. til byggingar Urriðaholtsskóla og endurnýjunar á sundlaug Garðabæjar sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Tillaga um lántöku að fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

14

21. (1836). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 400.000.000, verðtryggt með 2,60% föstum vöxtum.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

6. (828). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Kaupverð íbúðar að Stórási 7 - fært á fjárfestingu ársins kr. 35.000.000
Fjármagnað með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.
Bæjarstjórn samþykkir að sótt verði um lán til Íbúðalánsjóðs vegna kaupa á félagslegri leiguíbúð.

Bæjarráð Garðabæjar

16

12. (1827). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erl. tungumálum kr. 300.000
Félag eldri borgara kr. 400.000
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 350.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000
Kvenréttindafélags Íslands kr. 100.000
Aflið, samtök gegn kynferðisofbeldi kr. 100.000
Garðálfar, kór eldri borgara á Álftanesi kr. 300.000

Bæjarráð Garðabæjar

17

12. (1827). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Kaupverð íbúðar að Stórási 7 - fært á fjárfestingu ársins kr. 35.000.000

Fjármagnað með lækkun á handbæru fé um sömu upphæð.

Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán til Íbúðalánsjóðs vegna kaupa á félagslegri leiguíbúð.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

3. (825). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Tekin ný langtímalán (hækkun) kr. 1.369,540.000
Launakostnaður (hækkun) kr. 40.020.000
Skammtímaskuldir (hækkun) kr. 247.911.000
Handbært fé í árslok (lækkun) kr. 40.020.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

3. (825). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku allt að fjárhæð kr. 1.850.000.000 verðtryggt með 2,64% ávöxtunarkröfu. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), samkvæmt skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 160238, sbr. útgáfulýsingu, dags. 14. febrúar 2017.
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2020) sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. desember 2017 og með viðauka nr. 1 sem samþykktur var á fundi bæjarstjórnar í dag.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

20

3. (825). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

21

6. (1821). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Alls bárust tilboð upp á 2.100 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 2,45-2,65%. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 1.850.000.000 verðtryggt með 2,64% vöxtum. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), með stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 16 01, sbr. útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016.

Bæjarráð Garðabæjar

22

4. (1819). fundur

Bæjarverkfræðingur fór yfir framkvæmdaáætlun 2018 og gerði grein fyrir stöðu þeirra og áætluðum framkvæmdatíma.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

23

2. (1817). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum frá Arion banka og Íslandsbanka í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði allt að fjárhæð 2,0 ma. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Íslandsbanka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.

María Grétarsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá.

María Grétarsdóttir, fer fram á að bókað verði að hún telji rétt að leita til fleiri aðila varðandi umsjón með verkefninu.

Bæjarráð Garðabæjar

24

1. (1816). fundur

Eftirfarandi tillaga samþykkt.

Einstaklingar með tekjur árið 2016 allt að kr. 5.000.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 5.500.000.

Hjón með tekjur árið 2016 allt að kr. 6.400.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.700.000.

Bæjarstjórn Garðabæjar

25

19. (821). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur um breytingar við frumvarpið

Jöfnunarsjóður útgjaldajöfnunarframlag -64.000.000
Jöfnunarsjóður grunnskólaframlag -15.000.000
Jöfnunarsjóður v/sérþarfa fatlaðra -1.200.000
Jöfnunarsjóður Nýbúaframlag -2.100.000
Jöfnunarsjóður málefni fatlaðra -50.000.000
Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkun 34.000.000
Framlag vegna samninga við félög 20.000.000
Fjölskyldusvið ? nýtt stöðugildi 8.800.000
Tækni- og umhverfissvið ? nýtt stöðugildi 8.800.000
Menningarmál 3.000.000
Málefni eldri borgara ? upplýsingarit o.fl. 1.000.000
Leikskólagjöld - lækkun 10.800.000
Skólaskrifstofa ? sérverkefni: velíðan nemenda 7.000.000
Tómstundastarf 10 - 12 ára barna 5.000.000
Hönnunarsafn hækkun á framlagi ríkisins -2.200.000
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis 3.189.000

Breyting A-hluti -32.911.000
Niðurstaða A-hluta samkvæmt frumvarpi -110.778.628
Niðurstað A-hluta með breytingum -143.689.628

Fráveitugjald ? lækkun 37.000.000
Vatnsgjald ? lækkun 31.000.000

Breyting B- hluti 68.000.000

Samtals breyting A og B-hluta 35.089.000

Niðurstaða A og B-hluta samkvæmt frumvarpi -544.882.370
Niðurstaða A og B-hluta með breytingum -509.793.370

Steinþór Einarsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Hér er lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 ásamt áætlun fyrir árin 2019 til 2021.
Fjárhagsáætlunin fyrir árið 2018 ber þess merki að það styttist í kosningar, sem er svo sem allt í góðu því það er sama hvenær góðar tillögur koma fram þótt betra sé að það dragist ekki of mikið.
Nú á að halda aftur af hækkunum á leikskólagjöldum sem er vel, því það færir okkur nær öðrum sveitarfélögum í þeim efnum.
Hvatapeninga á að hækka verulega eða úr 32.000 krónum í 50.000 krónur fyrir hvert barn. Á síðasta ári þótti ekki svigrúm til meiri hækkunar en úr 30.000 krónum í 32.000 krónur.
Þessar tvær tillögur koma sér afar vel fyrir ungar barnafjölskyldur.
Lækka á álögur fasteignaskatts úr 0,23% í 0,20%, sem ber að fagna en vegna mikillar hækkunar á fasteignamati þá skilar það sér ekki í krónutölulækkun hjá öllum. Til samanburðar þá má geta þess að Reykjavíkurborg var að samþykkja lækkun fasteignaskatts úr 0,20% í 0,18%.
Í framkvæmdaáætlun er afar jákvætt að áfram er m.a. lagt til að fara í verulegar endurbætur gatna og gangstíga ásamt nýframkvæmdum útivistarstíga. Stórar fjárhæðir eru til íþrótta- og skólamannvirkja ásamt framkvæmda við bæjargarð, sem reyndar átti að ljúka fyrir einhverjum kosningum síðan.
Nú stefnir í að framkvæmdir fari að hefjast við búsetuúrræði fyrir fatlað fólk, hins vegar kemur fram í framkvæmdaáætlun að þær framkvæmdir virðast eiga að standa yfir í nokkur ár, eða árin 2018 - 2021.
Nýtt verkefni með sjö milljón króna framlagi er sett inn á skólaskrifstofu varðandi vellíðan nemenda með áherslu á kvíða. Þetta er þarft verkefni og ber að fagna þessari áherslu. Hins vegar er rétt að benda á í þessu samhengi að undirritaður flutti tillögu sem var samþykkt í maí síðast liðnum, þess efnis að hluti sautján milljón króna arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga færi í verkefni í þágu ungs fólks, meðal annars til að vinna með kvíða.
Fleiri tillögur sem undirritaður hefur flutt að undanförnu eru að koma til framkvæmda eða von er á að komist fljótlega til framkvæmda. Sumar tillögur hafa reyndar verið óvenju lengi í vinnslu.
Í þessari fjárhagsáætlun er eins og fyrr er getið mjög margt gott og því ekki annað hægt en að styðja hana.

María Grétarsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarbúar hafa sætt auknum álögum fasteignaskatta sl. 5 ár. Fyrstu áætlanir meirihlutans vegna fasteignaskatts heimila fyrir næsta ár gerðu ráð fyrir lækkun úr 0,23% í 0,21% (70% hækkun frá árinu 2013) en hafa nú verið lækkaðir í 0,20% sem er um 65% hækkun frá árinu 2013, auk lækkunar á vatnsgjaldi og holræsa og rotþróunargjöldum. Fólkið í bænum hefði viljað vinda ofan af þessu álögum og ganga lengra í lækkun fasteignaskatta.
Fólkið í bænum telur mikilvægt að leitað verði hagræðingar í leikskólum bæjarins þannig að svigrúm myndist til lækkunar gjaldheimtu til foreldra. Reynt verði að leita leiða að ráðast í hagræðingar án þess að þjónusta við fjölskyldur í bænum skerðist.
Fagnað er tillögum að hækkun frístundarstyrks barna og ungmenna en jafnframt er Fólkið í bænum orðið langeygt eftir tillögum frá meirihlutanum varðandi skoðun á sambærilegu frístundakorti fyrir eldri borgara sem búið er að vera til skoðunar allt kjörtímabilið.
Samningar eru lausir við kennara, Fólkið í bænum leggur áherslu á að samið verði við þá fljótt og vel og þannig að sómi verði af.
Fjárhagsáætlanagerð Garðabæjar ætti að vera samstarfsverkefni allra bæjarfulltrúa og starfsmanna bæjarins en ekki eingöngu meirihlutans. Fjárhagsáætlun meirihlutans sé þannig ekki einungis kynnt minnihlutanum á tveggja tíma fundi og tekið við ábendingum. Fólkið í bænum kallar eftir breyttum vinnubrögðum og auknu samstarfi við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins. Þar sem aðkoma Fólksins í bænum að fjárhagsáætlunargerð ársins 2018 hefur ekki verið meiri en raun ber vitni þá munum við sitja hjá við afgreiðslu hennar.“

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Aslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.

María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Einarson, tók til mals að nýju.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 og 2019 ? 2021. María Grétarsdóttir situr hjá.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018- 2021 eru:

2018 2019 2020 2021
Tekjur: 14.399.955 14.637.100 14.882.100 15.142.100
Gjöld: 13.209.394 13.441.311 13.763.305 14.097.948
Niðurstaða án fjármagnsliða: 1.190.561 1.195.789 1.118.795 1.044.152

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (680.768) (480.260) (436.055) (442.887)

Rekstrarniðurstaða 509.793 715.529 682.740 601.265

Bæjarstjórn Garðabæjar

26

19. (821). fundur

Lagðar fram til afgreiðslu tillögur að setningu eftirfarandi gjaldskráa.

Gjaldskrá tómstundaheimila, gjaldskrá sorphirðu, gjaldskrá taðþróargjalda, gjaldskrá bókasafns, gjaldskrá sundlauga, breytingu á gjaldskrá vatnsveitu og fráveitu.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sorphirðu.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá taðþróargjalda.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá bókasafns.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sundlauga.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á gjaldskrá vatnsveitu.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á gjaldskrá fráveitu

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

19. (821). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2018.

„Fasteignaskattur skal vera 0,20% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,10% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2018 vera 25,7 kr/tonn m.v. BVT í des 2017.
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt Gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. kr. 29.600.

Sorphreinsigjald skal vera kr. 24.450 á hverja íbúð [sjá gjaldskrá].

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 291.400 á hvert hús. [sjá gjaldskrá].

Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2018 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október.“

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

28

47. (1813). fundur

Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2018 ásamt yfirliti um breytingar á öðrum gjaldskrám.

Lögð fram tillaga um breytingar á einstaka liðum við A og B - hluta frumvarps að fjárhagsáætlun ásamt breytingu á tillögu að framkvæmdayfirliti.

Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018-2021 ásamt tillögum að breytingum og tillögu um álagningu gjalda til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 7. desember nk.

Bæjarráð Garðabæjar

29

46. (1812). fundur

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar frá íbúum sem borist hafa í tengslum við vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018. Alls er um að ræða 75 ábendingar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra í framhaldi af samþykkt fjárhagsáætlunar að svara öllum ábendingum og greina nánar frá viðbrögðum við einstaka tilvikum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

30

27. fundur

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun fór fram í bæjarstjórn 2. nóvember sl. Síðari umræða er fyrirhuguð í bæjarstjórn 7. desember nk. Umræður voru um ramma fyrir menningarmálin.

Bæjarstjórn Garðabæjar

31

18. (820). fundur


Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2018.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2018 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2017 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.


Bæjarráð Garðabæjar

32

44. (1810). fundur

Bæjarráð vísar tillögu um álagningu útsvars á árinu 2018 til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.

Tillögu um álagningu fasteignagjalda og tillögum um breytingar á gjaldskrám er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu um fjárhagsáætlun sem fram fer 7. desember nk.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

33

20. fundur

Skólastjóri fór yfir útsend fylgigögn með fjárhagsáætlun 2018 en fyrri umræða fór fram í bæjarstjórn 2. nóvember. Fjárhagsáætlun er að stórum hluta sambærileg yfirstandandi fjárhagsári.
Skólanefnd ítrekar mikilvægi þess að huga að stækkun á húsnæði skólans í Kirkjulundi og á Álftanesi.

Bæjarráð Garðabæjar

34

43. (1809). fundur

Lögð fram tillaga um álagningu útsvars og tillaga um álagningu fasteignagjalda.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

35

17. (819). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018 - 2021. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

María Grétarsdóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.


Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:

2018 2019 2020 2021
Tekjur: 14.374.600 14.604.600 14.849.600 15.109.600
Gjöld: 13.148.945 13.423.959 13.740.693 14.071.676
Niðurstaða án fjármagnsliða:
1.225.655 1.180.641 1.108.907 1.037.924

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
(680.774) (478.094) (422.034) (420.340)

Rekstrarniðurstaða 544.881 702.547 686.873 617.584

Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018 - 2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

36

42. (1808). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 og árin 2019 - 2021, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 eru:

Heildartekjur 14.374.600 þkr.
Heildargjöld 13.148.945 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.225.655 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) (680.774) þkr.
Rekstrarniðurstaða 544.881 þkr.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.

Bæjarráð Garðabæjar

37

42. (1808). fundur

Lagðar fram og kynntar ábendingar sem borist hafa frá íbúum í tengslum við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

Bæjarráð Garðabæjar

38

40. (1806). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir römmum að fjárhagsáætlun 2018 samkvæmt málaflokka- og deildaryfirliti.

Bæjarráð Garðabæjar

39

39. (1805). fundur

Bæjarráð vísar tillögunum til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

40

26. fundur

Farið var yfir helstu forsendur í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð í bæjarstjórn Garðabæjar 2. nóvember nk.

Umræður voru um ramma fyrir menningarmálin.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

41

39. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir tillögur í fjárhagsáætlun.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

42

19. fundur

Farið var yfir forsendur og verkferla fjárhagsáætlunar 2018.
Skólastjóri lagði ríka áherslu á að halda áfram að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans t.d. má nefna að komið er að endurnýjun á flyglum.
Með stækkandi byggð má gera ráð fyrir aukinni aðsókn nemenda í skólanum og huga þarf að auknu hlutfalli stöðugilda og stækkun á húsnæði skólans í Kirkjulundi á og Álftanesi

Bæjarráð Garðabæjar

43

33. (1799). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og verkferlum við undirbúning fjárhagsáætlunar. Gert er ráð fyrir að fyrri umræða verði í bæjarstjórn 2. nóvember og síðari umræða 7. desember.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

44

37. fundur

Tillögur frá Umhverfisnefnd um málefni á fjárhagsáætlun 2018.

Undirbúningur fjárhagsáætlunar rædd