42. (1808). fundur
42. (1808). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
31.10.2017
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 og árin 2019 - 2021, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018 eru:
Heildartekjur 14.374.600 þkr.
Heildargjöld 13.148.945 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.225.655 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) (680.774) þkr.
Rekstrarniðurstaða 544.881 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - ábendingar frá íbúum.
Lagðar fram og kynntar ábendingar sem borist hafa frá íbúum í tengslum við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
03
Kinnargata 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birki Fannari Bragasyni, kt. 040288-2799 leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 4.
04
Urriðaholtsstræti 32 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 12 íbúðum að Urriðaholtsstræti 32.
05
Bréf íbúa í Hleinum varðandi samþykkt á breytingu á deiliskiplagi Garðahrauns, dags. 22.10.17.
Lagt fram bréf íbúa á Hleinum þar sem lýst er óánægju með samþykkt bæjarstjórnar á breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sem gerir ráð fyrir lokun gamla Álftanesvegar við Hraun.
Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.
Fylgiskjöl
06
Bréf Stígamóta um styrk fyrir árið 2018, dags. 15.10.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
07
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um leyfi til veðsetningar golfskála, dags. 20.10.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
08
Bréf stjórnar Villikatta um lóðarskika undir færanlegt smáhýsi, 24.10.17.
09
Bréf Vegagerðarinnar varðandi auglýsingaskilti með ljósdíóðum, dags. 11.10.17.
10
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi lýsingu tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík, dags. 20.10.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.