Beint í efni

Garðahraun. Breytingar á deiliskipulagi.

Málsnúmer 1606329

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (1839). fundur

Bréfið er lagt fram og bæjarstjóra falið að svara bréfritara.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

1. (1816). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

42. (1808). fundur

Lagt fram bréf íbúa á Hleinum þar sem lýst er óánægju með samþykkt bæjarstjórnar á breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sem gerir ráð fyrir lokun gamla Álftanesvegar við Hraun.

Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.

Fylgiskjöl

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

1. fundur

Lögð fram ósk lóðarhafa um að byggingarreitur lóðarinnar Garðprýði 5 sé færður til um 8 metra til austurs.
Skipulagsstjóri samþykkir með vísan í 2.mgr. 43.gr. Skipululagslaga og 2.ml 3.mgr.44.gr. að um óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sé að ræða og að grenndarkynning sé felld niður. Endurskoðað deiliskipulag Garðahrauns liggur fyrir með þessari breytingu en þar sem að umsækjandi hefur hafið undirbúning framkvæmda er þessi leið farin að þeirra ósk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

6. (808). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

6. (808). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns ásamt svörum við athugasemdum sem bárust í athugasemdarfresti samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson, og María Grétarsdóttir sitja hjá.

Samþykkt að vísa framkominni tillögu um frestun á lokun gatnamóta til bæjarráðs.

Bæjarráð Garðabæjar

08

10. (1776). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns ásamt svörum við athugasemdum sem bárust í athugasemdarfresti samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga 123/2010.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, gerir athugasemd við lokun Herjólfsbrautar í austur um Gamla Álftanesveginn.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Garðahrauns sem auglýst var frá 7.september til 19.október sl. Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa. Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra þar sem lagðar er fram tillögur um viðbrögð við athugasemdum og svör við þeim.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni til að koma til móts við athugasemdir:
- Sett verði ákvæði í greinargerð og tákn á uppdrátt þess efnis að akstur neyðarbifreiða og strætisvagna sé heimill frá Garðahraunsvegi að Herjólfsbraut í báðar áttir.
- Að byggingarreitur að Garðprýði 5 verði fluttur um 8 metra til vesturs.
- Að kveðið verði á um hámark byggðs flatar á lóð verði 35 % í stað 300 m2.
- Að gert verði ráð fyrir stoppistöð strætisvagna við Garðahraunsveg.
- Að sett verði ákvæði í deiliskipulagsgreinargerð og tákn á uppdrátt sem gerir ráð fyrir hindrunum á milli Garðprýðis og Herjólfbrautar með það að markmiði að koma í veg fyrir gegnumakstur.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að svörum til þeirra sem gerðu athugasemdir.
Skipulagsnefnd samþykkir breytingar á deiliskipulagi Garðahrauns með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga og felur skipulagsstjóra að senda þeim sem athugasemdir gerðu svör og senda tillöguna ásamt fylgigögnum til athugundar hjá Skipulagsstofnun.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

16. fundur



Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
13 erindi með athugasemdum með alls 66 undirskriftum við tillöguna hafa borist og lúta þær flestar að lokun Garðahraunsvegar til vesturs.
Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

11

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna breytingu á vegtengingum o.fl.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Garðahrauns.
Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru:
Gatnakerfi: Vegtenginar við nýjan Álftanes breytist. Garðahraunsvegi (Álftanesvegi eldri) er lokað til vesturs þannig að ekki er tenging við Herjólfsgötu. Tengingar flestra húsagatna við Garðahraunsveg breytast. Suðurhluti götunnar Steinprýði breytist og færist upp að bæjarmörkum við Hafnarfjörð. Syðsti hluti götunnar Skógarprýði breytist.
Mótvægisaðgerðir venga umferðarhávaða frá Álftanesvegi eru óþarfar og falla því brott. Ástæðan er sú að hæðarlega Álftanesvegar lækkaði við endanlega hönnun að beiðni Garðabæjar. Lóðir við götuna Steinprýði breytast.
Lega nokkurra stíga breytist og gert er ráð fyrir útivistarhringleið um hraunið norðan við hverfið.
Mörk skipulagssvæðis breytast og er það stækkað til norðurs og útivistarsvæði (Kjarvalsgerði) verður nú innan deiliskipulagsmarka.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. og 1.mgr.43.gr skipulagslaga nr. 123/2010.