24. (1839). fundur
24. (1839). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.07.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Hulda Hauksdóttir,
Dagskrá
Málsnúmer 1806030
01
Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ um samstarf um heilsueflingu, 31.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806407
02
Umsóknir starfsmanna á leik- og grunnskólum um styrki til að stunda háskólanám með vinnu.
Bæjarráð samþykkir umsóknir eftirfarandi starfsmanna leik- og grunnskóla um vinnuafslátt skólaárið 2018-2019 til að stunda námslotur í fjarnámi við Háskóla Íslands.
Helga Linnet, sérkennslustjóri á Holtakoti.
Hjördís Skúladóttir, leiðbeinandi á Ökrum.
Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir, leiðbeinandi á Hæðarbóli.
Anna María Snorradóttir, stuðningsfulltrúi í Hofsstaðaskóla.
Magndís Anna Arnardóttir, stuðningsfulltrúi í Hofsstaðaskóla.
Vala Ósk Ásbjörnsdóttir, forstöðumaður tómstundaheimilis Hofsstaðaskóla.
Málsnúmer 1606329
03
Bréf Gunnars H. Jónssonar varðandi gatnamót Herjólfsbrautar og gamla Álftanesvegar, dags. 24.06.18.
Bréfið er lagt fram og bæjarstjóra falið að svara bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807047
04
Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um forgangsröðun heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, dags. 03.07.18.
Lögð fram og vísað til umfjöllunar viðeigandi nefnda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807043
05
Útboð - Urriðaholt, Malbikun göngustíga
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið Urriðaholt, malbikun göngustíga.
Tilboðsverð eftir yfirferð.
Háfell ehf. kr. 43.678.500
Tinnuberg ehf. kr. 105.475.000
Stálborg ehf. kr. 78.481.000
Gott Verk ehf. kr. 51.270.000
Kostnaðaráætlun kr. 46.777.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Háfells ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807042
06
Útboð - Urriðaholt, Malbikun gatna
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið Urriðaholt, malbikun gatna.
Tilboðsverð eftir yfirferð.
Háfell ehf. kr. 92.664.000
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 98.382.000
Fagverk Verktakar ehf. kr. 129.765.000
Kostnaðaráætlun kr. 131.283.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Háfells ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.