Bréf forsætisráðherra varðandi kynningu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, dags. 28.01.19.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
5. (1866). fundur
Lagt fram bréf forsætisráðherra með hvatningu um að sveitarfélög innleiði heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sinni og nýti þau sem leiðarljós í stefnumótun.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Innleiðing Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna kynnt.
Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. júlí 2018, um innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna lagt fram. Bæjarráð Garðabæjar vísaði markmiðunum til kynningar í helstu nefndum bæjarins.
Lagt fram og rætt.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
07
1. fundur
Kynning á heimsmarkmiðum SÞ um lýðheilsu.
Markmiðin eru yfirmarkmið heilsueflandi samfélags í Garðabæ.
Tillögur verkefnastjórnar að forgangsröðun heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega kynnt en aðkoma sveitarstjórna verður rædd nánar á landsþingi sveitarfélaga. Rætt um að markmið heilsueflandi samfélags í Garðabæ samræmist alheimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
1. fundur
Lögð er fram til kynningar tilkynning sambandsins um tillögur verkefnastjórnar að forgangsröðun á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega. Endanlegar ákvarðanir að verkefninu verða teknar á næsta landsþingi
Fylgiskjöl
- Bæjarráð Garðabæjar - 24. (1839) (10.7.2018) - Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um forgangsröðun heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, dags. 03.07.18.
- Heimsmarkmid SÞ 280618.pdf
- Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um samþykkt á forgagangsröðun á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, dags. 03.07.2018..doc
Fjölskylduráð Garðabæjar
10
7. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1807047. Bæjarráð Garðabæjar vísaði dags.10.7. 2018 til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og fleiri nefndum tilkynningu Sambandsins um tillögur verkefnastjórnar að forgangsröðun á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega. Fram kemur í tilkynningunni að endanlegar ákvarðanir um aðkomu sveitarstjórnarstigsins að verkefninu verða teknar á næsta landsþingi sveitarfélaga. Fjölskylduráð fjallar um málið sem verður tekið fyrir að nýju síðar.
Bæjarráð Garðabæjar
11
24. (1839). fundur
Lögð fram og vísað til umfjöllunar viðeigandi nefnda.