5. (1866). fundur
5. (1866). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.02.2019
Kl. 08:00 - 08:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Sunna Stefánsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2019 - lántaka.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000, verðtryggt með 2,45% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
02
Ársreikningur Garðabæjar 2018 - afskriftir viðskiptakrafna.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 3.905.722.
03
Endurgreiðsla á framlögum til Brúar - lífeyrissjóðs.
Bæjarstjóri kynnti samkomulag við Brú lífeyrissjóð um endurgreiðslu á framlagi Garðabæjar að fjárhæð kr. 10.000.000, sem greitt var sjóðnum á árinu 2018 vegna Ísafoldar
Fylgiskjöl
04
Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðandi skýrsla um kjör aldraðra, dags. 24.01.19.
05
Niðurstöður átakshóps um húsnæðismál, dags. 19.01.19.
06
Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðandi skýrslu velferðarvaktarinnar, dags. 22.01.19.
07
Bréf forsætisráðherra varðandi kynningu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, dags. 28.01.19.
Lagt fram bréf forsætisráðherra með hvatningu um að sveitarfélög innleiði heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sinni og nýti þau sem leiðarljós í stefnumótun.
Fylgiskjöl
08
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um boðun XXXIII. landsþings sambandsins, dags. 29.01.19.
Í bréfinu boðar Samband íslenskra sveitarfélaga til XXXIII. landsþings sambandsins föstudaginn 29. mars nk.
Fylgiskjöl
09
Bréf Alþingis varðandi tillögu að þingsályktun um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna í íslensku samfélagi, dags. 31.01.19.
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra (Framkvæmdasjóður aldraðra), dags. 31.01.19.
11
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaldur), dags. 31.01.19.
12
Bréf Garðaálfa um styrk til kórs eldri borgara á Álftanesi, dags. 31.01.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2019 sem fram fer í mars/apríl.
Fylgiskjöl
13
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 31.01.19.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 8.457.051 til greiðslu fasteignagjalda árið 2019.
Fylgiskjöl
14
Bréf UMF Stjörnunnar um niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 28.01.19.
Bæjarráð samþykkir að veita UMF Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.843.225 til greiðslu fasteignagjalda árið 2019.