Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2018 (síðari umræða).

Málsnúmer 1811129

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (846). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2018.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um ársreikning og lýsti ánægju með niðurstöðu reikningsins sem sýnir trausta fjárhagstöðu bæjarins. Gunnar Valur færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra þátt í
góðum og traustum rekstri Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2018 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (845). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2018. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2018 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

11. (1872). fundur

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhaldsdeildar mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2018, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður. Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2018 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 21. mars 2019 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 4. apríl 2019.

Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

04

5. (1866). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 3.905.722.

Bæjarráð Garðabæjar

05

42. (1857). fundur

Lögð fram kynning endurskoðenda varðandi áherslur við endurskoðun á ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2018.

Stefnt er að því að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2018 verði tekinn fyrir við fyrri umræðu í bæjarstjórn 21. mars 2019.

Fylgiskjöl