11. (1872). fundur
11. (1872). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.03.2019
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Ársreikningur Garðabæjar 2018.
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhaldsdeildar mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2018, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður. Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2018 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 21. mars 2019 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 4. apríl 2019.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410, leyfi til að endurbyggja atvinnuhúsnæði, í stað húsnæðis sem var rifið eftir bruna, að Miðhrauni 4.
03
Keldugata 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þóroddi Björgvinssyni, kt. 260765-3539, leyfi til að byggja einbýlishús að Keldugötu 1.
04
Muruholt 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Telmu Sigtryggsdóttur, kt. 090375-6017, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Muruholti 2.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að stækkun byggingarreits við Smáraflöt 11.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Smáraflöt 11 um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingarreit.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir Alþjóðaskólann.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda þar sem gert er ráð fyrir lóð fyrir húsnæði Alþjóðaskólans í landi Þórsmerkur. Tillagan skal kynnt á fundi þar sem íbúar aðliggjandi lóða við Ægisgrund verða sérstaklega boðaðir.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna lóðar fyrir Alþjóðaskólann.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna landnotkunarreits 2.09 OP, sbr. tillögu að breytingu að deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á íbúafundi. Einnig skal tillagan kynnt aðliggjandi sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 6-12.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 6-12. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir. Samþykkt deiliskipulagsbreyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna stækkunar á byggingarreit golfskála GKG.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna stækkunar á byggingarreit fyrir viðbyggingu við golfskála GKG. Fallið er frá gerð lýsingar, sbr. heimild í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
10
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk vegna heimildamyndar um líf og byggingarlist Högnu Sigurðardóttur arkitekts.
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrkveitingu að fjárhæð kr. 200.000 vegna heimildarmyndar um líf og byggingarlist Högnu Sigurðardóttur, arkitekts.
11
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 90. mál., dags. 11.03.19.
12
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál., dags. 13.03.19.
13
Bréf Kópavogsbæjar varðandi endurskoðun aðalskipulags Kópavogs 2012-2024, dags. 06.03.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
14
Bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi móttöku flóttamanna, dags. 18.03.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í að verða við erindi félagsmálaráðuneytisins um móttöku á allt að 10 flóttamönnum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa málið sem m.a. felst í að gera samning við ráðuneytið um nauðsynlega þjónustu og aðstoð, ráða verkefnastjóra og leita eftir húsnæði til að útvega fólkinu.
Bæjarráð vísar bréfi ráðuneytisins til kynningar í fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
15
Bréf Útlendingastofnunar varðandi mögulega gerð þjónustusamnings vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd, dags. 13.03.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
16