Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrk vegna heimildamyndar um líf og byggingarlist Högnu Sigurðardóttur arkitekts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (1872). fundur
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi styrkveitingu að fjárhæð kr. 200.000 vegna heimildarmyndar um líf og byggingarlist Högnu Sigurðardóttur, arkitekts.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Erindi Ragnhildar Ásvaldsdóttur, dags. 19. febrúar 2019, um styrk vegna heimildarmyndar tekið fyrir.
Erindi Ragnhildar Ásvaldsdóttur, leikstjóra og framleiðanda, dags. 19. febrúar sl., um styrk vegna heimildamyndar um líf og byggingarlist Högnu Sigurðardóttur arkitekts var tekið fyrir. Upplýsingastjóra var falið að kanna hvort hægt sé að sýna myndina í Garðabæ, t.d. í tengslum við skólastarf og/eða í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita verkefninu styrk að upphæð 200 þúsund krónur.