Beint í efni

Undirbúningur vegna komu flóttafólks.

Málsnúmer 1902102

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (1888). fundur

Félagsráðgjafi gerði grein fyrir stöðu undirbúnings vegna komu flóttafólks til Garðabæjar en gert er ráð fyrir að taka á móti fyrstu einstaklingunum um miðjan september.

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (1881). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

3. fundur

Fyrir liggur að Garðabær mun taka á móti hópi flóttafólks á næstu mánuðum. Staða málsins var kynnt fyrir fjölskylduráðien bæjarstjóri hefur sett af stað leit af húsnæði og er annar undirbúningur farinn af stað. Félagsráðgjafi fjölskyldusviðs hefur verið í góðum tengslum bæði við ráðuneyti og verkefnastjóra Mosfellsbæjar varðandi móttökuna.

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (1872). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í að verða við erindi félagsmálaráðuneytisins um móttöku á allt að 10 flóttamönnum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa málið sem m.a. felst í að gera samning við ráðuneytið um nauðsynlega þjónustu og aðstoð, ráða verkefnastjóra og leita eftir húsnæði til að útvega fólkinu.

Bæjarráð vísar bréfi ráðuneytisins til kynningar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

7. (1868). fundur

Á fund bæjarráð mættu Linda Rós Alfreðsdóttir, frá félagsmálaráðuneytinu, Eva Rós Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ vegna móttöku flóttamanna og Nína Helgadóttir umsjónarmaður flóttamanna hjá Rauða krossinum. Gerðu þær grein fyrir samstarfsverkefni milli ríkisins, sveitarfélaga og Rauða krossins um móttöku flóttamanna. Farið var nánar yfir hlutverk og verkefni sveitarfélaga, hlutverk Rauða krossins og reynslu Mosfellsbæjar af móttöku flóttamanna.

Valborg Ösp Á Warén, varabæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs.