20. (1881). fundur
20. (1881). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
28.05.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Holtsvegur 23-25 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Holtsvegi 23-25 húsfélagi, kt. 651114-0390 leyfi til að útbúa tvær geymslur á jarðhæð þar sem áður var fyllt rými og að gera þaksvalir fyrir íbúð á 5. hæð í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 23-25.
02
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra, 825. mál., dags. 17.05.19.
Lagt fram.
03
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um matvæli (sýklalyfjanotkun), 753. mál, dags. 20.05.19.
Lagt fram.
04
Bréf Ríkiskaupa varðandi þátttöku í útboði á raforkukaupum, dags. 21.05.19.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í útboði Ríkiskaupa á raforkukaupum.
05
Samningur um móttöku, aðstoð og þjónustu við flóttafólk.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
06
Tillaga Garðabæjarlistans um að Stjarnan geri grein fyrir jafnréttisstefnu í stefnu og skipulagi félagsins.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til meðferðar við afgreiðslu á endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna. Bæjarráð tekur fram að í samningum við íþrótta- og tómstundafélög hefur jafnan verið ákvæði þar sem kveðið er á um að taka skuli mið af jafnréttisáætlun Garðbæjar við skipulag á starfsemi viðkomandi félaga.
Fylgiskjöl
07
Tillaga Garðabæjarlistans um ákvæði í samningum við íþróttafélög sem kveða á um að tryggja aðgengi fatlaðra barna og ungmenna að íþróttaiðkun.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til meðferðar við afgreiðslu á endurnýjun samstarfssamninga við íþrótta- og tómstundafélög. Bæjarráð tekur fram að í samningu við félögin hefur jafnan verið sérstakt ákvæði þar sem kveðið er á um að mæta skuli þörfum barna og ungmenna með fatlanir í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlað fólks.
Fylgiskjöl
08
Bréf Vinafélags Pólska skólans, dags. 05.05.19.
09
Bréf Guðríðar Jónu Örlygsdóttur varðandi aðstæður við sundkennslu í Mýrinni, dags.24.05.19.
Bæjarverkfræðingur upplýsti um að verið er að vinna að lausn málsins með hönnun og endurnýjun á loftræstisamstæðu sundlaugar.