3. fundur
3. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.03.2019
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Skýrsla um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016
Skýrsla um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016 lögð fram til kynningar og umræðu. Farið yfir helstu niðurstöður skýrslunnar en fram kemur að sérstaklega þurfi að huga að bætingu lífskjara einstæðra foreldra og barna þeirra sem og að huga að börnum öryrkja. Samkvæmt skýrslunni er fátækt barna algengust meðal barna þessara hópa. Félags- og barnamálaráðherra hefur greint frá því að skýrslan sé mikilvægt innlegg í þá vinnu sem nú stendur yfir í málefnum barna þar sem áhersla er m.a. lögð á aukinn stuðning við barnafjölskyldur til að tryggja hagsmuni barna.
02
Stefnumótun í málefnum barna
Stefnumótun Félagsmálaráðuneytisins í málefnum barna lögð fram til kynningar og umræðu. Endurskoðun á þjónustu við börn er hafin með ráðningu sérstaks verkefnastjóra í málefnum barna. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu þvert á ráðuneyti sem og annara aðila sem koma að þjónustu við börn, m.a. sveitarfélögin. Einnig hefur verið skipuð þverpólitísk nefnd sem falið hefur verið að leggja til breytingar á lögum, reglugerðum og framkvæmd þjónustu með áherslu á snemmtæka íhlutun og samvinnu kerfa.
Samþykkt að óska eftir því við fjölskyldusvið og fræðslu- og menningarsvið að taka saman yfirlit um þá þjónustu sem verið er að veita börnum í Garðabæ og þá mælikvarða sem eru fyrirliggjandi varðandi stöðu barna í bænum. Umrætt yfirlit verði síðan nýtt sem umræðugrunnur fyrir mótun sérstakrar stefnu um málefni barna í Garðabæ.
03
Tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða í tengslum við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2019.
Farið var yfir framkvæmd lýðræðisverkefnisins "Betri Garðabær" og stöðu þess. Fram kom að hugmyndasöfnun standi enn yfir og að fjöldi hugmynda hafi nú þegar komið fram frá íbúum Garðabæjar. Fjölskylduráð fagnar verkefninu og hversu vel það fer af stað.
04
Móttaka flóttamanna.
Fyrir liggur að Garðabær mun taka á móti hópi flóttafólks á næstu mánuðum. Staða málsins var kynnt fyrir fjölskylduráðien bæjarstjóri hefur sett af stað leit af húsnæði og er annar undirbúningur farinn af stað. Félagsráðgjafi fjölskyldusviðs hefur verið í góðum tengslum bæði við ráðuneyti og verkefnastjóra Mosfellsbæjar varðandi móttökuna.