Beint í efni

Betri Garðabær - framkvæmdaáætlun.

Málsnúmer 1810028

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (1885). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi áætlun um framkvæmdir verkefna sem hlutu kosningu í rafrænum íbúakosningum - Betri Garðabær.

Framkvæmt 2019 Kostnaður Framkvæmt 2020 Kostnaður
Skjólveggur við heita
potta í Ásgarði 2 mkr Útivistarstígur í Heiðmörk 20 mkr
Útisturta við ströndina í Sjálandi 2 mkr Fjórir vatnsfontar 5 mkr
Sundfatavindur í Álftaneslaug 1 mkr Leiksvæði við ströndina í Sjálandi 25 mkr
Tíu áningastaðir með bekkjum 10 mkr Sjónaukar við Arnarnesvog 3 mkr
Aparóla við Hofsstaðaskóla 3 mkr Fræðsluskilti við stríðsminjar 5 mkr
Fjölgun strætóskýla (að hluta) 12 mkr Ærslabelgur við Álftanesskóla 3 mkr
Yfirbyggt hjólask. við Aktu Taktu 5 mkr
Samtals 30 mkr Samtals 66 mkr

Framkvæmdaáætlun verður birt á vef Garðabæjar og uppfærð á þriggja mánaða fresti og einnig verða framkvæmdirnar sýnilegar á kortavef bæjarins, undir „verklegar framkvæmdir“. Reglulega verða birtar fréttir á vef Garðabæjar og Facebook síðu bæjarins um framgang verkefnanna og þegar hverju verkefni er lokið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

22. (1883). fundur

Lögð fram fundargerð kjörstjórnar þar sem lýst er niðurstöðum rafrænna íbúakosninga sem fram fóru dagana 23. maí - 3. júní um 27 hugmyndir bæjarbúa um smærri framkvæmdir.

Eftirfarandi verkefni hlutu kosningu.

Verkefni Fjöldi atkvæða Fjárhæð
Útivistarstígur í Heiðmörk; 1207 20.0
Skjólveggur við heita potta í Ásgarði; 1079 2.0
Fjórir vatnsfontar; 1027 5.0
Útisturta við ströndina í Sjálandi; 914 2.0
Sundfatavindur í Álftaneslaug; 913 1.0
Tíu áningastaðir með bekkjum; 895 10.0
Leiksvæði við ströndina í Sjálandi; 873 25.0
Aparóla við Hofsstaðaskóla ; 820 3.0
Fjölgun strætóskýla; 789 12.0
Sjónaukar við Arnarnesvog; 752 3.0
Fræðsluskilti við stríðsminjar ; 683 5.0
Ærslabelgur við Álftanesskóla; 680 3.0
Yfirbyggt hjólaskýli við Aktu Taktu Ásgarði; 586 5.0
Samtals: 96 m.kr.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa áætlun vegna framkvæmda við ofangreind verkefni á árunum 2019-2020 og merkja framkvæmdastaði með upplýsingum um væntanlega framkvæmd.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

5. fundur

Fjallað um stöðu lýðræðisverkefnisins "Betri Garðabær" en kosning er að hefjast. Þá var farið yfir endurskoðun lýðræðisstefnu bæjarins en undirbúningsnefnd um verkefnið mun hefja störf á næstu vikum. Frekari upplýsingar um framkvæmd verkefnisins munu koma fyrir fjölskylduráð á næstu mánuðum.

Bæjarráð Garðabæjar

04

17. (1878). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöður matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“.

Alls bárust 304 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og leggur matshópurinn til að 27 hugmyndir fari í kosningu.

Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins. Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 23. maí til 3. júní nk.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

05

15. (1876). fundur

Bæjarráð samþykkir leiðbeiningareglur um rafrænar kosningar þar sem íbúar fá tækifæri til að kjósa um fjárveitingar til verkefna sem farið verður í á árunum 2019 og 2020.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

13. (1874). fundur

Lagðar fram reglur um rafrænar kosningar vegna kosninga um hugmyndir í verkefninu „Betri Garðabær“

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

3. fundur

Farið var yfir framkvæmd lýðræðisverkefnisins "Betri Garðabær" og stöðu þess. Fram kom að hugmyndasöfnun standi enn yfir og að fjöldi hugmynda hafi nú þegar komið fram frá íbúum Garðabæjar. Fjölskylduráð fagnar verkefninu og hversu vel það fer af stað.

Bæjarráð Garðabæjar

08

9. (1870). fundur

Upplýsingastjóri kynnti minnisblað um lýsingu á verkefninu Betri Garðabær sem er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið er hugsað sem þróunarverkefni sem þróast áfram með reynslu og árangri, eftir fyrstu umferð verður verkefnið og verkefnalýsing þess endurskoðuð. Í verkefnalýsingunni koma fram helstu dagsetningar, markmið og áfangar. Gert er ráð fyrir að kosning standi yfir frá 23. maí til og með 3. júní 2019.

Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að málinu á grundvelli framlagðs minnisblaðs.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

09

2. fundur

Formaður gerir grein fyrir þróun verkefnis um íbúalýðræði.

Formaður rakti stöðu verkefnisins og vinnu starfshóps starfsmanna Garðabæjar um málið. Áformað er að kynna verkefnið fyrir bæjarbúum í mars og að íbúakosning fari fram í síðari hluta maí mánaðar. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framgang verkefnisins.

Fjölskylduráð Garðabæjar

10

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1810028, tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða. Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.

Ráðið fjallaði um minnisblað vegna lýðræðisverkefna í Garðabæ.
Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með undirbúning málsins og telur mikilvægt að koma verkefninu af stað á þessu ári. Þá samþykkti ráðið að vinna að endurnýjun á lýðræðisstefnu Garðabæjar, sem samþykkt var árið 2010, og er stefnt að því að klára þá vinnu fyrir haustið. Samþykkt að kalla eftir hugmyndum annarra fastanefnda bæjarins um þau áhersluatriði kosninga. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi ráðsins.

Bæjarráð Garðabæjar

11

2. (1863). fundur

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði um útfærslu á verkefnum sem unnin verða í samráði við íbúa samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um 50,0 mkr fjárveitingu í fjárhagsáætlun 2019.

Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að verkefninu í samræmi við sem fram kemur í minnisblaðinu um næstu skref, tímaáætlun og undirbúning.

Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

13. (835). fundur

Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Almari Guðmundssyni.

"Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 verði varið 50 milljónum í verkefni sem verða skilgreind og unnin í samráði við íbúa. Garðabær setji sér vinnureglur um lýðræðisleg vinnubrögð og íbúasamráð undir heitinu ,,Góður Garðabær“. Þar sé meðal annars tiltekið hvernig byggt verður á hugmyndum íbúa varðandi viðhaldsverkefni og/eða nýframkvæmdir og kosningu íbúa á milli skilgreindra verkefna. Áhersla verði lögð á verkefni sem fela í sér aukið öryggi bæjarbúa, efli hreyfi- og leikmöguleika eða hafi jákvæð áhrif á nærumhverfi. Markmiðið er að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu og verja fé til framkvæmda sem byggir á forgangsröðun íbúanna sjálfra."

Greinargerð:
Garðabær var fyrst íslenskra sveitarfélaga til að setja sér lýðræðisstefnu árið 2010. Æ síðan hefur íbúasamráð skipað veigamikinn sess í störfum bæjarins. Má í því sambandi nefna mikla áherslu á opna íbúa-, samráðs- og kynningarfundi um málefni sem eru til umræðu hvað varðar bæjarfélagið í heild eða um það sem snertir einstök hverfi.
Undir heitinu ,,Góður Garðabær“ mun Garðabær með markvissum hætti skilgreina leiðir til að auka enn frekar íbúasamráð, m.a. með því að íbúar skilgreini sjálfir verkefni og kjósi síðan um hvaða verkefni eiga að hljóta framgang. Þannig verði leitað til bæjarbúa varðandi hugmyndir að nýframkvæmdum og/eða viðhaldsverkefnum með áherslu á öryggi bæjarbúa, hreyfi- og leikmöguleika og aukin lífsgæði í nærumhverfi og hverfum. Einnig verði lögð áhersla á að verkefnin efli bæjarbraginn í heild sinni.
Tillagan felur í sér að þegar á næsta ári verði stigið skref í þessa átt með því að verja hæfilegri fjárhæð í málið sem hægt verður að hækka eftir því sem betri reynsla fæst á vinnulag og árangur.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framlagða tillögu og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.

Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi framlagða tillögu og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu.