15. (1876). fundur
15. (1876). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
16.04.2019
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Uppbygging í Vetrarmýri - kynning á stöðu verkefnis.
Á fund bæjarráðs mættu Anna Sigríður Arnardóttir og Gísli Reynisson, starfsmenn Spildu ehf. og gerðu grein fyrir stöðumati á þarfa- og kostgæfnigreiningu vegna uppbyggingar byggðar í Vetramýri.
Harpa Þorsteinsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúar sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita Veitum ohf. og tækni- og umhverfissviði Garðabæjar framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar lagna og yfirborðs gatna í Norðurtúni og Túngötu.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá skipulagi vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þar sem vikið er óverulega frá bundinni byggingarlínu við byggingu verslunar- og þjónustuhúss við Urriðaholtsstræti 2. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
04
Framlög til stjórnmálasamtaka 2019
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.
Sjálfstæðisflokkur kr. 2.239.009
Garðabæjarlistinn kr. 1.015.653
Miðflokkur kr. 245.338
Samtals: kr. 3.500.000
05
Úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.
Bæjarráð samþykkir að úthluta eftirfarandi aðilum styrk af fjárveitingu til styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.
Garðálfar , kór eldri borgra á Álftanesi kr. 300.000
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Bjarkahlíð-miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 200.000
Stígamót kr. 150.000
Garðakórinn kr. 350.000
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi kr. 100.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Félag eldri borgara í Garðabæ kr. 400.000
Sjónarhóll kr. 150.000
06
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um vorþing sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins 2019, dags. 12.04.19.
07
Bréf Sorpu bs. varðandi ársreikning 2018, dags. 03.04.19.
08
Ársreikningur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2018.
09
Ársreikningur heilbrigðiseftirlits 2018.
Lagður fram.
Fylgiskjöl
10
Bréf Brynju Hússjóðs ÖBÍ varðandi umsókn um stofnframlög árið 2019, dags. 27.03.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara en samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019 er ekki gert ráð fyrir fjárveitingum til stofnframlaga vegna kaupa á almennum íbúðum.
Fylgiskjöl
11
Bréf Sjónarhóls ráðgjafamiðstöðvar ses. um styrk, dags. 08.04.19.
12
Tilkynning frá Umhverfisstofnun varðandi auglýsingu á tillögu um starfsleyfi fyrir Sorpu bs., dags. 08.04.19.
13
Tilkynning um skýrslu afmælisnefndar sjálfstæðis og fullveldis Íslands, dags. 09.04.19.
14
Bréf Samgöngustofu varðandi beiðni um umsögn vegna staðsetningar ökutækjaleigu (Hegranes 21), dags. 04.04.19.
Afgreiðslu frestað.
15
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, dags. 11.04.19.
Lagt fram.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um lýðskóla, 798. mál., dags. 12.04.19.
Lagt fram.
17
Tölvupóstur Árna Bjarnsteinssonar varðandi sumarlaun vegna þátttöku í olympíuleikjum í stærðfræði, dags. 11.04.19.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um að greiða honum sumarlaun 2019 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í olympíuleikjunum í stærðfræði.
18
Svar við fyrirspurn um fréttastefnu.
Lagt fram svar við fyrirspurn um fréttastefnu.
Fylgiskjöl
19
Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir sem bárust og leggur til að úthlutað verði kr. 8.000.000 úr sjóðnum til 13 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.
20
Lýðræðisverkefnið - reglur um rafrænar kosningar.
Bæjarráð samþykkir leiðbeiningareglur um rafrænar kosningar þar sem íbúar fá tækifæri til að kjósa um fjárveitingar til verkefna sem farið verður í á árunum 2019 og 2020.
Fylgiskjöl
21
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Brúnási 12.
Bæjarráð vísar málinu til nýrrar meðferðar byggingarfulltrúa.