Beint í efni

Umsóknir um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna kaupa á þjónustu og ráðgjöf við úthlutun lóðarréttinda og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Málsnúmer 1902222

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

21. (1979). fundur

Umsóknir bárust frá eftirfarandi aðilum.

FS Torg ehf.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Kvika banki

Umsóknir hafa verið yfirfarnar. Beðið var um viðbótarupplýsingar og gögn sem umsækjendur hafa skilað.

Allir ofangreindir aðilar uppfylla útboðsskilmála og samþykkir bæjarráð að öllum umsækjendum verði boðið að taka þátt í lokuðu úrboði vegna kaupa á þjónustu og ráðgjöf við úthlutun lóðarréttinda og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Útboðsgögn verða afhent 14. júní nk. og er skilafrestur tilboða til kl. 14:00, fimmtudaginn 15. júlí nk.

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (1978). fundur

Á rafrænum opnunarfundi voru umsóknir frá eftirfarandi aðilum opnaðar.

FS Torg ehf.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
Kvika banki

Bæjarráð vísar umsóknum til yfirferðar en gert er ráð fyrir að tilkynning um val á þátttakendum verði send út 9. júní nk.

Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (1971). fundur

Bæjarráð samþykkir auglýsingu og skilmála forvals vegna þjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Ingvar Arnarson, situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (1969). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að skilmálum forvals og auglýsingu vegna ráðgjafaþjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Bæjarráð samþykkir skilmálana og felur bæjarstjóra að auglýsa forval þar sem óskað er eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna kaupa að ráðgjafarþjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Ingvar Arnarson, situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

10. (1968). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að forvalsskilmálum fyrir ráðgjafaþjónustu vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

06

6. (1964). fundur

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi viðræður við Skipulagsstofnun og Kópavog um athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi tengingar á gatnakerfi sveitarfélaganna í Hnoðraholti. Fyrirhugaður er fundur með Skipulagstofnun um málið í dag.

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um aðferðir við útfærslu á úthlutun lóða og sölu byggingarréttar lóða í Vetrarmýri. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

11. (851). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Í framhaldi af þarfa- og kostgæfnigreiningu fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Vetrarmýri samþykkir bæjarstjórn Garðabæjar að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Fasteignaþróunarfélagið Spildu ehf. um aðstoð við gerð tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar í samvinnu við skipulagsnefnd Garðabæjar og arkitektastofuna Batteríið sem vinnur að gerð deiliskipulags svæðisins.
Ráðgjöf Spildu nær m.a. til eftirtalinna þátta:
? Umsjón með gerð deiliskipulags í Vetrarmýri í samræmi við hugmyndir og áherslur sem kynntar voru á fundi bæjarráðs 18. júní 2019. Meginmarkmiðið er að halda þeirri skýru sýn og stefnu sem mörkuð er í niðurstöðum þarfa- og kostgæfnigreiningar og tryggja að deiliskipulagið færi bænum þau gæði sem sóst er eftir.
? Rýni skipulagsgagna og fundir með skipulagsráðgjöfum og skipulagsnefnd.
? Áframhaldandi samtal við megin kjölfestuaðila sem ákjósanlegir þykja við uppbyggingu svæðisins. Niðurstöðum viðræðna skal skilað til bæjarráðs.
Gengið er út frá því að gerð deiliskipulagsgagna taki allt að 5-6 mánuði og að tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar verði tilbúin til afgreiðslu bæjarstjórnar til auglýsingar eigi síðar en í janúar 2020.
Tengiliður bæjarins við Spildu í verkefninu er skipulagsstjóri Garðabæjar.
Kostnaður vegna ráðgjafarstarfa Spildu er áætlaður 2,5 m.kr. auk virðisaukaskatts.“

Greinargerð:
Á vormánuðum 2019 unnu Spilda og Garðabær saman að þarfa- og kostgæfnigreiningu fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Vetrarmýri í Garðabæ. Til hliðsjónar greiningarvinnunni lá niðurstaða samkeppni um skipulag í Vetrarmýri frá 2018, deiliskipulag fyrir fjölnota íþróttahús og drög að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Hnoðraholts sem eru í vinnslu hjá skipulagsnefnd bæjarins. Skoðaðir voru ýmsir valkostir fyrir Garðabæ varðandi framtíð Vetrarmýrar og mat lagt á þá. Markaðsaðstæður voru kannaðar og m.a. rætt við kjölfestuaðila, fyrirtæki og stofnanir sem gætu hentað inn á svæðið út frá fyrirfram skilgreindum samfélagslegum forsendum.
Í greinargerð þarfa- og kostgæfnigreiningar sem kynnt var á fundi bæjarráðs 18. júní 2019 hefur stefna Garðabæjar við deiliskipulagningu Vetrarmýrar verið rýnd og áherslur bæjarins við uppbyggingu svæðisins skilgreindar nánar. Stefnt skal að því að uppbygging atvinnuhúsnæðis í Vetrarmýri falli vel að áherslum aðalskipulags Garðabæjar varðandi uppbyggingu atvinnusvæða í bænum, nýtist samfélaginu í heild, auki gæði samfélagsins í Garðabæ og styðji við íbúðarbyggð í Vetrarmýri, Hnoðraholti og öðrum nærliggjandi svæðum. Áhersla skal lögð á græn svæði, gott samspil milli íbúðarbyggðar og atvinnuhúsnæðis og örugg tengsl gangandi, hjólandi og akandi umferðar. Gatnakerfi verði hnitmiðað og skilvirkt. Hugað verði að hagkvæmri samnýtingu bílastæða með fjölnota íþróttahúsinu.

Ingvar Arnarson, tók til máls um framkomna tillögu og lýsti andstöðu við tillöguna. Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn hafnar því að eyða fjármagni í að fela þriðja aðila utanumhald með þeim verkefnum sem lýst er í tillögu meirihlutans þar sem ávinningurinn af aðkomu þriðja aðila virðist lítil sem enginn. En ekki síður vegna þess að skilgreind verkefni hafa hingað til verið unnin af starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs og því fer betur að nýta hæfi starfsmann sveitarfélagsins til verksins og um leiða að fara vel með skattpening íbúa Garðabæjar.“

Sigurður Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og framlagða bókun.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju um framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju um framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um framkomna tillögu

Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Bæjarráð Garðabæjar

08

23. (1884). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Anna Sigríður Arnardóttir og Gísli Reynisson starfsmenn Fasteignaþróunarfélagsins Spildu ehf. og gerðu grein fyrir tillögum og hugmyndum um uppbyggingu í Vetrarmýri.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir, sátu fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

09

15. (1876). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Anna Sigríður Arnardóttir og Gísli Reynisson, starfsmenn Spildu ehf. og gerðu grein fyrir stöðumati á þarfa- og kostgæfnigreiningu vegna uppbyggingar byggðar í Vetramýri.

Harpa Þorsteinsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúar sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

4. (844). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samning við Fasteignaþróunarfélagið Spildu ehf., um ráðgjöf við þarfa- og kostgæfnigreiningu vegna uppbyggingar byggðar í Vetrarmýri. Samningurinn er til þriggja mánaða.

Bæjarráð Garðabæjar

11

9. (1870). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til bæjarstjórn að samþykkja samning við Fasteignaþróunarfélagið Spildu ehf., um ráðgjöf við þarfa- og kostgæfnigreiningu vegna uppbyggingar byggðar í Vetrarmýri. Samningurinn er til þriggja mánaða.