21. (1979). fundur
21. (1979). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.06.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1910059
01
Keldugata 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þóroddi Björgvinssyni, kt. 260765-3539 leyfi fyrir stoðvegg og óuppfylltu rými í einbýlishúsi í byggingu við Keldugötu 1.
Málsnúmer 1811206
02
Dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-226/2020, dags. 28. maí 2021
Í dómsorði kemur fram að Garðabær skuli sýkn af kröfum stefnanda í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105738
03
Bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis varðandi breytingar á jarðalögum, dags. 28.05.21.
Málsnúmer 1902036
04
Erindi Brúar lífeyrissjóðs varðandi uppgjör vegna Hjallastefnunnar, dags. 29.01.19.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær gangi frá uppgjöri við Brú lífeyrisjóð vegna hlutdeildar í kröfu sjóðsins vegna framlaga í jafnvægisjóð og varúðarsjóð sem ógreitt er vegna starfsmanna Hjallastefnunnar. Alls er krafan gagnvart 11 sveitarfélögum samtals að fjárhæð kr. 101.684.542 og þar af er hlutur Garðabæjar kr. 23.458.624. Öll sveitarfélögin hafa samþykkt að ganga frá uppgjöri við sjóðinn vegna málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105150
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Landnáms ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Hliði á Álftanesi.
Umsagnarbeiðnin er tekin fyrir að nýju þar sem í umsókn komu ekki fram upplýsingar um fjölda gesta.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Landnám ehf., kt. 640295-2529, fái rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Hliði á Álftanesi og í umsókn kemur fram að miðað er við 79 gesti.
Málsnúmer 2106070
06
Ályktun Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022, dags. 01.06.21.
Málsnúmer 2106080
07
Erindi Pikkoló um nýsköpunarverkefni er varðar dreifikerfi fyrir matvæli sem versluð eru á netinu, dags. 03.06.21.
Um er að ræða nýsköpunarverkefnið Pikkoló - Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu. Sótt er um leyfi til að koma fyrir 15 fm smáhýsi á lóð Marel.
Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2106094
08
Áskorun Samtaka iðnaðarins um útboð á viðhaldi, rekstri og LED-væðingu götulýsingar, dags. 03.06.21.
Garðabær hefur þegar hafið undirbúning að útboði viðhaldsþjónustu á svæði HS Veitna og mun verða tekið skoðunar að bjóða út viðhald, rekstur og LED væðingu götulýsingar fyrir bæjarfélagið í heild.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101470
09
Endurnýjun vallarsamnings við Stjörnuna.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun vallarsamnings við Stjörnuna. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt rekstrarframlag kr. 57.300.000.
Málsnúmer 2106022
10
Tilkynning Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á deiliskipulagi er varðar Lyngás 13 og 15, dags. 01.06.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2106107
11
Undirskriftalisti íbúa í Urriðaholti um bættar samgöngur., mótt. 04.06.21.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Sara Dögg Svanhildardóttir lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn ítrekar afstöðu sína um almenningssamgöngur. Traustrar og góðra almenningssamgöngur er ein grunnforsenda þess að íbúar geti átt raunverulegt val um umhverfisvænan lífsstíl. Garðabæjarlistinn hvetur meirihlutann til þess að tryggja að svo verði.“
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104104
12
Framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir framkvæmdum við gatnagerð í Kumlamýri og viðræðum við landeiganda Brekku varðandi framkvæmdir innan jarðarmarkanna. Fyrir liggur að landeigandi hafnar tilboði bæjarins um kaup á landinu og hefur lýst því yfir að vilja frekar eiga land sitt óbreytt.
Bæjarráð samþykkir að halda áfram með framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri á landi bæjarins þar sem eru 27 lóðir sem koma til úthlutunar.
Málsnúmer 1902222
14
Umsóknir um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna kaupa á þjónustu og ráðgjöf við úthlutun lóðarréttinda og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Umsóknir bárust frá eftirfarandi aðilum.
FS Torg ehf.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Kvika banki
Umsóknir hafa verið yfirfarnar. Beðið var um viðbótarupplýsingar og gögn sem umsækjendur hafa skilað.
Allir ofangreindir aðilar uppfylla útboðsskilmála og samþykkir bæjarráð að öllum umsækjendum verði boðið að taka þátt í lokuðu úrboði vegna kaupa á þjónustu og ráðgjöf við úthlutun lóðarréttinda og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Útboðsgögn verða afhent 14. júní nk. og er skilafrestur tilboða til kl. 14:00, fimmtudaginn 15. júlí nk.